Forsætisráðherra leggur til verulega lækkun handhafalauna
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um laun forseta Íslands og lögum um Stjórnarráð Íslands.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er kveðið skýrt á um eitt af forgangsverkefnum kjörtímabilsins: Að hagræða í ríkisrekstri, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir.
Með þessi markmið að leiðarljósi hefur Stjórnarráðið hrint af stað viðamiklu umbótaverkefni sem unnið verður að á næstu árum.
Í upphafi árs var efnt til víðtæks samráðs undir yfirskriftinni Verum hagsýn í ríkisrekstri. Leitað var eftir hugmyndum frá almenningi, öllum ráðuneytum og forstöðumönnum ríkisstofnana. Viðtökur voru framar vonum:
Forsætisráðherra fól fjögurra manna utanaðkomandi hópi sérfræðinga að vinna úr hugmyndunum. Hlutverk hópsins var að skila tillögum um raunhæfa hagræðingu og umbætur.
Til að tryggja að tillögurnar nái fram að ganga skipaði forsætisráðherra sérstakan vinnuhóp um hagsýni í ríkisrekstri.
Aðgerðir sem draga úr vexti útgjalda
Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að aðgerðir tengdar tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar til að draga úr útgjaldavexti ríkissjóðs nemi alls 11 ma.kr. Aðgerðirnar byggjast á útfærslu fjármálaáætlunar 2026–2030 en alls hefur í fjármálaáætlun verið gert ráð fyrir um 107 ma.kr. uppsafnaðri hagræðingu á tímabilinu. Markmiðið er að draga úr ríkisumsvifum, treysta stöðu ríkissjóðs og vinna gegn þenslu og verðbólgu.
Rekstur og eignir ríkisins
Fréttir