Mynd/Hari

Eignir ríkisins

Eignir ríkisins eru margar og marvíslegar og má þar nefna hús og önnur mannvirki, jarðir, eyðibýli, lóðir og annað land. Þá eru ríflega 30 félög í meirihlutaeigu ríkisins.

Markvisst er unnið að því að meðferð allra ríkiseigna verði samræmd, fagleg og hagkvæm og í því skyni er umsýsla og meðferð meirihluta eigna ríkisins í höndum miðlægrar eignaumsýslu auk þess sem unnið er að miðlægri skráningu allra eigna, réttinda og auðlinda.