Jarðrænar auðlindir
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með jarðrænar auðlindir á landi ríkisins, nema lög eða stjórnvaldsfyrirmæli kveði á um annað, samanber 43. gr. laga um opinber fjármál.
Þær jarðrænu auðlindir sem hér falla undir eru t.a.m. jarðhiti, vatnsorka, námuréttindi, kaldavatnsréttindi og aðrar auðlindir sem eru á eignarlöndum í eigu ríkisins utan þjóðlenda. Forsætisráðuneytið fer með auðlindir og réttindi innan marka þjóðlenda skv. lögum nr. 58/1998, um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Flestar af þeim auðlindum ríkisins sem ráðuneytið fer með eru á jörðum í eigu ríkisins sem eru í umsýslu Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna sem sem f.h. ráðuneytisins hefur daglega umsjón og umsýslu með jörðum og landspildum í eigu ríkisins.
Eignir ríkisins