Sala á eftirstandandi hlutum í Íslandsbanka 2025

Dagana 13. - 15. maí 2025 fór fram markaðssett útboð með eftirstandandi hluti ríkissjóðs í ISB, 45,2% af útistandandi hlutabréfum. Útboðið var haldið í samræmi við lög nr. 80/2024, um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hf. Grunnmagn útboðsins náði til allt að 20% af heildarhlutafé bankans, með heimild til að auka útboðsmagn ef umframeftirspurn yrði til staðar í útboðinu. Samanlagt gat því grunnmagn útboðsins og möguleg magnaukning numið öllum eftirstandandi hlutum ríkisins í bankanum, 850.000.007, eða 45,2% af heildarhlutafé bankans (42,5% af upphaflega 100% hlutafé ríkisins). Útboðinu var skipt í þrjár tilboðsbækur A, B og C sbr. ofangreind lög.

Þann 15. maí sl. var tilkynnt að í ljósi umtalsverðar heildareftirspurnar og fordæmalausrar eftirspurnar innanlands í útboðinu hafi verið ákveðið að selja allan eignarhlut ríkissjóðs í ISB með því að virkja heimild til magnaukningar.

Tilboðsbók A var fyrir einstaklinga og á föstu gengi 106,56. Í tilboðsbókina bárust tilboð frá um 31 þúsund einstaklingum að andvirði um 88 milljarða króna. Lögin forgangsröðuðu tilboðsbók A svo tilboð sem uppfylltu skilyrði laganna fengu fulla úthlutun (upp að 20 m.kr. hámarki á einstakling). Um 96% af hlut ríkissjóðs var úthlutað til tilboðsbókar A og um 4% til tilboðsbókar B.

Með þessu útboði hefur ríkissjóður selt alla hluti sína í Íslandsbanka.

Tilboðslýsing útboðsins

Fréttir