Úrvinnsla og uppgjör eigna og skulda ÍL-sjóðs
ÍL-sjóður varð til við uppskiptingu Íbúðalánasjóðs og var stofnaður með lögum nr. 151/2019 sem tóku gildi 31. desember 2019. Fjármála- og efnahagsráðherra fór með yfirstjórn ÍL-sjóðs og hafði yfirumsjón með úrvinnslu og uppgjöri eigna og skulda sem ÍL-sjóður tók við í uppskiptingunni.
Frá því vorið 2022 var unnið markvisst að því að skapa skilyrði til að hægt væri að gera upp skuldir ÍL-sjóðs og slíta honum. Með samþykki meirihluta eigenda HFF íbúðabréfa vorið 2025 og samþykkt fjáraukalaga nr. 319/2025, var framkvæmt uppgjör við alla eigendur HFF íbúðabréfa þar sem þeir tóku við samblandi af eignum ÍL-sjóðs auk ríkisskuldabréfa og gjaldeyris frá ríkissjóði. Í framhaldi uppgjörsins var eigendum húsnæðisbréfa boðið að skipta á þeim og ríkisskuldabréfum auk þess sem eldri húsbréfaútgáfur hafa verið í sérstöku uppgjörsferli þar sem heimildir til útdráttar hafa verið nýttar. Um áramót tóku gildi lög um brottfalla laga um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðs og tók ríkissjóður yfir réttindi og skyldur sjóðsins frá sama tíma.
Tengiliður fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna verkefnisins er Katrín Oddsdóttir.
Eignir ríkisins
Lög og reglugerðir
Lög um úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðsReglugerð um framkvæmd úrvinnslu eigna og skulda ÍL-sjóðsÁform um lagasetningu - slit og uppgjör ÍL-sjóðs Regulatory Proposal Winding up and settlement of the HF FundDrög að frumvarpi um slit ógjaldfærra opinberra aðila í samráðsgátt(október 2023)