Uppgjör ríkissjóðs
Skýrsla hvers mánaðar um greiðsluhreyfingar A-hluta ríkissjóðs með samanburði við áætlanir innan ársins og útkomu sama tímabils árið á undan. Þar kemur m.a. fram upplýsingar um innheimtar tekjur, greidd gjöld, fjárfestingu, fjármögnun og skuldastöðu.
Ársfjórðungsskýrsla fyrir A-hluta ríkissjóðs
Skýrsla birt í lok hvers ársfjórðungs og skal sýna rekstur og efnahag A-hluta ríkssjóðs innan ársins til loka viðkomandi ársfjórðungs. Þar kemur m.a. fram samanburður á fjárheimildum og útgjöldum eftir málefnasviðum og málaflokkum. Einnig kemur fram samanburður á fjárhagsstöðu ríkisaðila og verkefna við fjárveitingar samkvæmt fylgiriti.
Ríkisreikningur
Ríkisreikningur sýnir endanlegt uppgjör ríkisfjármála hvers ár og nær yfir fjárreiður A-, B- og C- hluta ríkissjóðs.
Ríkisreikningur er settur fram í tveimur hlutum. Fyrri hluti nær yfir fjárreiður A- hluta ríkissjóðs í heild. Seinni hluti inniheldur samandregnar upplýsingar um fjármál ríkisaðila og lykiltölur úr ársreikningum ríkisaðila í A-, B- og C- hluta.
Á vef Fjársýslu ríkisins, www.fjs.is, er hægt að skoða ríkisreikning á pdf formi. Ríkisreikningur í heild og sundurliðaðir eru aðgengilegir á vefnum rikisreikningur.is og er þar að finna sundurliðun á tekjum og gjöldum ríkisins frá árinu 2004 og til dagsins í dag. Gögnin er hægt að skoða á margvíslegan hátt. Þar er að finna almenn yfirlit sem sýna sömu upplýsingar og finna má í útgefnum ríkisreikningi en einnig er hægt að kafa dýpra og fá upplýsingar niður á kostnaðartegund.
Fréttir
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
04 september 2023

Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ríkisreikningur 2021
31 maí 2022

Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ríkisreikningur 2020
29 júní 2021

Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ríkisreikningur 2019
09 júlí 2020

Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ríkisreikningur 2018
28 júní 2019
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2023
15 desember 2023
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2022
16 desember 2022
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrri helming ársins 2022
23 september 2022
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Uppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins betra en áætlað var
24 nóvember 2021
Rekstur og eignir ríkisins