Forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021-2025
Mælaborð
Alþingi samþykkti í júní 2020, þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025.
Áætluninni fylgja 26 aðgerðir sem eru brotnar niður á sex meginþætti. Ábyrgðaraðilar aðgerða eru ýmist ráðuneyti, stofnanir eða samtök. Á þessu svæði er farið yfir framgang aðgerðanna 26 á myndrænan hátt. Sú staða sem hér birtist er staðan miðað við október mánuð 2025. Litaval byggist á huglægu og hlutlægu mati á stöðu aðgerðanna og er unnin í samstarfi við tengiliði aðgerða.