Endurskoðun orðalags í aðalnámskrá

Fram fari rýni á aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla með tilliti til orðalagsbreytinga og viðbóta í þeim tilgangi að gera hinseginleikann að eðlilegum þætti námsumhverfisins. Rýnin verði nýtt við endurskoðun á aðalnámskrám.

Markmið aðgerðarinnar verði að aðalnámskrár og skólastarf endurspegli fjölbreytileika nemenda og breytt samfélag.
Tímaáætlun: 2026.

Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið. 
Framkvæmdaraðili: Miðstöð menntunar og skólaþróunar í samvinnu við Samtökin '78.
Kostnaðaráætlun: 1 millj. kr.

Staða aðgerðar:

Undirbúningur undir aðgerðina er hafinn með samtali við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu. 

Á byrjunarstigi