Þróun og miðlun fræðslu til lögreglu í tengslum við hinsegin samfélagið
Útvíkkuð verði fræðsla um hinsegin málefni fyrir lögreglufólk og starfsfólk RLS í samstarfi við Samtökin '78. Jafnframt verði fræðslan felld inn í símenntun lögreglufólks í gegnum Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar og aðlöguð ákveðnum starfseiningum, s.s. Fjarskiptamiðstöð og afbrotavörnum.
Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu lögreglufólks á málefnum hinsegin fólks, stuðla að réttindamiðaðri þjónustu og efla traust hinsegin samfélagsins á lögreglunni.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Embætti ríkislögreglustjóra.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Embætti ríkislögreglustjóra hefur í samstarfi við Samtökin 78 miðlað fræðslu til starfsfólks lögreglunnar bæði með stað- og fjarnámskeiðum undanfarin misseri. Nú er áhersla lögð á að koma nýrri stafrænni fræðslu á framfæri við starfsfólk. Stefnt er að því að miðla fræðslu sérstaklega til fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra á árinu 2026.