Jöfn foreldraviðurkenning
Skipaður verði starfshópur til að greina áskoranir og leiðir til að jafna rétt samkynja para til foreldraviðurkenningar á við gagnkynja pör. Í greiningunni skuli vera tekið sérstakt tillit til réttinda barnsins. Hópurinn skili greiningu og tillögum að viðeigandi aðgerðum eigi síður en í árslok 2027.
Markmið með aðgerðinni verði að jafna rétt samkynja para til foreldraviðurkenningar á við gagnkynja pör án þess að gengið sé á rétt barna.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa jafnréttismála.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina er í undirbúningi.
Á byrjunarstigi