Betri stuðningur við hinsegin þolendur heimilisofbeldis

Lögð verði áhersla á fræðslu til starfsfólks lögreglu þannig að það verði betur í stakk búið til að styðja hinsegin þolendur heimilisofbeldis og vinna að forvörnum gagnvart heimilisofbeldi. Vinnulýsingar verði yfirfarnar, boðið upp á fræðslu til lögreglu og haldin ráðstefna um málefnið. Jafnframt verði boðið upp á fræðslu til hinsegin

samfélagsins um verklag lögreglu í heimilisofbeldismálum. Sérstakur tengiliður lögreglu við hinsegin samfélagið verði skipaður við upphaf aðgerðaáætlunarinnar.

Markmið aðgerðarinnar verði að byggja upp traust í samskiptum lögreglu við hinsegin samfélagið til að hinsegin fólk hiki ekki við að leita til lögreglu eftir aðstoð vegna heimilis­ofbeldis og því sé ætíð mætt af virðingu.

Tímaáætlun: 2026–2029.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við viðeigandi aðila.

Kostnaðaráætlun: Áætlað er að ófjármagnaður kostnaður við þróun fræðslu og ráðstefnu nemi um 4 millj. kr. Aðrir þættir verkefnisins rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Fræðslu hefur verið miðlað til starfsfólks um hinsegin fólk og lögregluna. Vinnulýsingar hafa verið uppfærðar í samvinnu við Samtökin 78. Skipaðir hafa verið tengiliðir bæði af hálfu lögreglunnar og samtakanna. Hafist hefur verið handa við skipulagningu ráðstefnu haustið 2027. Unnið er að undirbúningi fræðslu frá lögreglu til hinsegin samfélagsins. 

Komið vel á veg