Bætt öryggi hinsegin ungmenna

Fléttað verði inn í fræðslu lögreglu til barna og ungmenna umfjöllun um alvarleika hatursorðræðu og -glæpa gagnvart hinsegin fólki. Unnið verði að því að skapa traust á milli lögreglu og hinsegin ungmenna, m.a. með fræðslu til starfsfólks lögreglu, samstarfi og reglulegum heimsóknum í ungmennahús.

Markmið aðgerðarinnar verði að stuðla að öryggi og jafnrétti fyrir hinsegin börn og ung­menni og byggja upp traust og gott samstarf milli hinsegin samfélagsins og samfélagslögreglu.

Tímaáætlun: 2026–2029.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Samfélagslögreglan vinnur að því að flétta fræðslu um hatursorðræðu og -glæpi inn í fræðsluefni til nemenda í skólum. Farið er í reglulegar heimsóknir í félagsmiðstöðvar hinsegin ungmenna og fundað með ungmennaráði hinsegin. Unnið er að því að bæta öryggi í strætó. 

Hafið