Aukinn sýnileiki hinseginleika í námsefni grunnskóla

Unnið verði að því að auka sýnileika hinseginleika í námsefni og kennslu í grunnskóla með ferns konar hætti. Í fyrsta lagi með uppfærslu handbókar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu fyrir námsefnishöfunda til að tryggja að allt nýtt og endurskoðað námsefni verði inngildandi fyrir hinsegin fólk. Í öðru lagi með setningu gæðaviðmiða um námsgögn með hliðsjón af hinseginleika. Í þriðja lagi með þróun leiðbeininga um hinsegin málefni fyrir kennara og annað starfsfólk í skóla- og frístundastarfi og öðrum störfum með börnum og ungmennum. Í fjórða og síðasta lagi verði námsefni sem eykur sýnileika hinseginleika þvert á skólastig forgangsatriði í úthlutun úr þróunarsjóði námsgagna 2027.

Markmið aðgerðarinnar verði að auka sýnileika hinsegin fólks í útgefnu námsefni í þeim tilgangi að draga úr fordómum, efla skilning og félagslega samkennd.

Tímaáætlun: 2026–2028.

Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í samstarfi við Samtökin '78.

Kostnaðaráætlun: 5 millj. kr.

Staða aðgerðar:

Útgefið efni hefur verið rýnt í samstarfi við Samtökin 78 til að greina hvort og hvar skorti efni eða bæta þurfi framsetningu. Nýlega gaf Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu út bókina Hinsegin saga. Þá er búið að endurskrifa Kynlif tímarit. Í vinnslu er hönnun stuðningsefnis fyrir kennslu um hinseginleika en kennsluleiðbeiningar fyrir kennara eru komnar út.

Komið vel á veg