Fræðsla til starfsfólks við málsmeðferð og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd
Þróuð verði og miðlað fræðslu um hinsegin málefni til starfsfólks við málsmeðferð og þjónustu við hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd. Jafnframt verði sjónum beint að menningar- og samfélagslegum áhrifaþáttum á stöðu hinsegin fólks í algengustu upprunalöndum hinsegin umsækjenda.
Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja að mannréttindi hinsegin umsækjenda um alþjóðlega vernd séu virt, stuðla að faglegri málsmeðferð og þjónustu.
Tímaáætlun: 2026–2029.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Útlendingastofnun í samvinnu við Samtökin '78.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Starfsfólk Útlendingastofnunar hefur fengið fræðslu frá Samtökunum 78. Stofnunin hefur ákveðið að fræðslan munu fara fram reglulega í framtíðinni.