Upplýsingar og fræðsla til stjórnenda ríkisins um hinsegin málefni
Bætt verði við upplýsingum um hinsegin málefni á miðlæga upplýsingasíðu fyrir stjórnendur hjá ríkinu. Upplýsingarnar verði teknar saman í samráði við hagsmunasamtök hinsegin fólks. Jafnframt verði tryggð nýliðafræðsla og símenntun um hinsegin málefni fyrir stjórnendur.
Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja aðgengi að upplýsingum, auk nýliðafræðslu og símenntunar meðal stjórnenda ríkisins til að koma í veg fyrir mismunun gagnvart hinsegin starfsfólki ríkisins.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Ábyrgð: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Kjara- og mannauðssýsla ríkisins í samvinnu við hagsmunasamtök.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Unnið er að þróun nýrrar stjórnendasíðu. Inn á hana verða m.a. færðar upplýsingar um hinsegin málefni. Hafist hefur verið handa við að tryggja nýliðafræðslu og símenntun.