Öruggt húsnæði, fræðsla og stuðningur við hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd

Metið verði með kerfisbundnum hætti hvort umsækjendur um alþjóðleg vernd tilheyri viðkvæmum hópum eins og hinsegin fólki. Tryggt verði að hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd geti upplifað sig örugga í húsnæði á vegum Vinnumálastofnunar á meðan á afgreiðslu umsóknar þeirra stendur, þeir fái viðeigandi þjónustu og fræðslu

á vegum hagsmunasamtaka auk þess sem þeim verði úthlutaður tengiliður innan velferðarteymis Vinnumálastofnunar þannig að bregðast megi við sértækum þörfum þeirra.

Markmiðið aðgerðarinnar verði að tryggja að hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd upplifi sig örugga innan íslenska verndarkerfisins, verði ekki fyrir áreiti, ofbeldi eða aðkasti á meðan þeir dvelja í búsetuúrræðum Vinnumálastofnunar.

Tímaáætlun: 2026-2028.

Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Vinnumálastofnun.

Kostnaðaráætlun: Rúmast innan fjárheimilda Vinnumálastofnunar.

Staða aðgerðar:

Vinnumálastofnun framkvæmir skimanir fyrir hælisleitendum í sérstaklega viðkvæmri stöðu við komuna til landsins. Spurt er hvort einstaklingur tilheyri LGBTI+. Ef slíkt kemur fram eflir stofnunin eftirfylgni með þeim einstaklingi. Þarfnist einstaklingur einhverra sérlausna, t.d. hvað varðar húsnæði, er unnið að slíkum lausnum í samvinnu við viðkomandi einstakling. Einnig vekur Vinnuálastofnun athygli á samtökunum 78 og aðstoðar einstaklinginn við að efla tengslanet sitt til að fá jafningastuðning.

Komið vel á veg