Vitundarvakning meðal ungs fólks um hatursorðræðu gagnvart hinsegin fólki

Efnt verði til vitundarvakningar um hatursorðræðu í garð hinsegin fólks í anda Orðanna okkar. Áhersla verði lögð á að ná til ungs fólks með markvissri dreifingu á viðeigandi miðlum.

Markmið aðgerðarinnar verði að sporna við aukinni hatursorðræðu í íslensku samfélagi, einkum gagnvart hinsegin fólki, með því að efla forvarnir og fræðslu meðal almennings, einkum ungs fólks.

Tímaáætlun: janúar 2026–2027.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Skrifstofa jafnréttismála í samstarfi við Jafnréttisstofu.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda að frátöldum kostnaði við vitundarvakningu á samfélagsmiðlum. 

Staða aðgerðar:

Hafist hafur verið handa við undirbúning vitundarvakningarinnar. Stefnt er að því að henni verði ýtt úr vör í byrjun árs 2027. 

Hafið