Skoðun á fýsileika þess að Sjúkratryggingar Íslands taki þátt í kostnaði við varðveislu kynfruma

Skoðaður verði fýsileiki þess innan heilbrigðisráðuneytisins að Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) taki þátt í kostnaði við varðveislu kynfruma vegna kynstaðfestandi meðferðar sem hefur áhrif á frjósemi.

Markmið aðgerðarinnar er að kostnaðarmeta greiðsluþátttöku SÍ í varðveislu kynfruma í því skyni að meta fýsileika þess að SÍ taki þátt í kostnaði við varðveislu kynfruma.

Tímaáætlun: 2026–2028.

Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við SÍ.

Framkvæmdaraðili: Sjúkratryggingar Íslands og viðeigandi sérfræðingar.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Heilbrigðisráðuneytið hefur hafið undirbúning að mati á fýsileika þess að Sjúkratryggingar Íslands taki þátt í kostnaði við varðveislu kynfruma vegna kynstaðfestandi meðferðar sem getur haft áhrif á frjósemi. Matið mun meðal annars taka til kostnaðar við slíka greiðsluþátttöku.

Hafið