Áherslur í ríkisrekstri fyrir árið 2026
Helstu áherslur í ríkisrekstri til næstu ára snúa að bættri þjónustu og hagkvæmari ríkisrekstri með einfaldari stjórnsýslu og hagræðingu í rekstri. Til að styðja við áherslurnar standa stofnunum til boða ýmis verkfæri.
Góð þjónusta
- Taki Stafræn skref í samvinnu við Stafrænt Ísland.
- Taki þátt í þjónustukönnun ríkisins til að meta gæði þjónustunnar.
- Miðli upplýsingum á forsendum notenda, með hliðsjón af efnisstefnu Ísland.is.
- Kynni sér þjónustukerfi Stafræns Íslands.
- Taki þátt í stafrænni hæfnikönnun og nýti endurmenntunarsjóði til framþróunar mannauðs.
- Skoði aðgerðir til að bæta netöryggi í rekstri tölvu- og netkerfa stofnana og fylgist m.a. með tilkynningunnum CERT-IS netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda.
- Tryggi öryggi gagna meðal annars út frá öryggisflokkun gagna ríkisins.
Öflugur mannauður
- Móti mannauðsstefnu stofnunar í takt við stefnu ríkisins í mannauðsmálum og þarfir samfélagsins hverju sinni.
- Skilgreini ferla mannauðsstjórnunar, s.s. ráðningarferla, hæfnigreiningar, starfsþróunaráætlanir og fræðslu sem tekur mið af framtíðarþörfum stofnana. Fylgi leiðbeiningum sem fram koma á mannauðstorgi ríkisins.
- Nýti námskeið Stafræna skólans til að efla stafræna færni starfsfólks.
- Hugi að samsetningu mannauðs með tilliti til fjölbreytileika og inngildingar m.a. með því að fjölga sveigjanlegum störfum fyrir fólk með skerta starfsgetu.
- Skrái mannauðsgögn í miðlæg kerfi ríkisins, Oracle launakerfi og Vinnustund.
- Öll störf séu auglýst óstaðbundin nema sérstakar aðstæður krefjist annars.
Sjálfbær rekstur
- Hagræði í rekstri með notkun rammasamninga og endurútboða eldri samninga og nýti til þess innkaupamælaborð og ráðgjöf Fjársýslunnar.
- Auki þekkingu starfsfólks á innkaupum í gegnum innkaupaskólann.
- Séu vakandi fyrir nýjum leiðum til að auka skilvirkni í starfsemi hins opinbera og fyrir nýjum tækifærum til samreksturs.
- Skoði fjárfestingarframlag við endurnýjun eldri upplýsingatæknikerfa.
- Kynni sér ávinningsmat stafrænna ferla hjá Stafrænu Íslandi.
- Nýti skýjaþjónustur meðal annars í gegnum núverandi samning um skýjaþjónustu.
- Skoði möguleika á að nýta upplýsingatækni í auknum mæli og gervigreind með aukna framleiðni og rekstrarhagræði að leiðarljósi.
- Taki græn skref í ríkisrekstri og tryggi virka umhverfisstjórnun.
Skipulag og stjórnun ríkisstofnana