Tilkynningagátt

Utanríkisráðuneytið er ábyrgt fyrir framkvæmd alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands í samræmi við lög nr. 121/2008 og stefnu Íslands fyrir málefnasviðið. Þróunarsamvinnufé er varið á margvíslegan máta, svo sem með styrkjum til samstarfsaðila og -stofnana, en einnig í gegnum starf ráðuneytisins, meðal annars með starfi á vettvangi í þróunarlöndum.

Þróunarsamvinna er kostuð með skatttekjum íslensks almennings og er á hendi utanríkisráðuneytisins að fylgjast með hvernig þessu fé er varið. Allri misnotkun á þeim fjármunum er tekið alvarlega. Misnotkun getur verið af ólíkum toga og getur sem dæmi falið í sér mútur, fjárdrátt eða sóun á almannafé. Misnotkun getur einnig verið misalvarleg, hún getur verið afrakstur kæruleysis eða vanhæfni, verið af ásetningi, eða jafnvel verið af þeim toga að vanræksla eða að gjörðir séu refsiverð brot.

Utanríkisráðuneytið fylgir einnig tilmælum þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) um að  koma í veg fyrir kynferðislega misneytingu, misnotkun, og kynferðislegt áreiti í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Þáttur í því er að gera starfsfólki og samstarfsaðilum kleift að tilkynna grun um brot.

Vilt þú tilkynna grun um misnotkun á þróunarsamvinnufé?

Tvær leiðir eru færar:

  1. Tilkynning til Ríkisendurskoðanda
    Allir sem hafa upplýsingar eða gögn um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi sem fellur undir starfssvið Ríkisendurskoðanda hafa heimild til að greina Ríkisendurskoðanda frá slíku og afhenda gögn þar að lútandi. Hægt er að senda tilkynningu til Ríkisendurskoðunar og er viðkomandi bent á að kynna sér upplýsingar á heimasíðu þeirra um vernd uppljóstrara. Hægt er að hafa samband við Ríkisendurskoðun símleiðis í síma 448-8800, senda ábendingu í gegnum vefsíðu Ríkisendurskoðunar, með tölvupósti á netfangið [email protected] eða með því að senda bréf til embættisins á heimilisfangið Bríetartún 7, 105 Reykjavík, sem merkt er „Uppljóstrun“.
  2. Tilkynning til utanríkisráðuneytisins
    Allar tilkynningar eru unnar í trúnaði og hægt er að gefa nafnlausar tilkynningar. Þó skal bent á að auðveldara er fyrir ráðuneytið að vinna úr málum ef tilkynningaraðili gefur upp nafn og tengiliðaupplýsingar. Úrvinnsla mála og rannsókn fer eftir stöðluðu verklagi. Form fyrir tilkynningar um grun um misnotkun á þróunarsamvinnufé um má nálgast hér.

Vilt þú tilkynna grun um einelti, kynbundna áreitni, misnotkun, eða kynferðislegt áreiti í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð?

Tvær leiðir eru færar:

  1. Innri tilkynningar fyrir starfsfólk utanríkisþjónustunnar
    Fyrir innri tilkynningar um einelti, kynbundna áreitni, kynferðisleg áreitni eða ofbeldi (EKKO) er starfsfólki utanríkisráðuneytisins bent á forvarna- og viðbragðsáætlun utanríkisráðuneytisins. Einnig er hægt að senda tilkynningar með tölvupósti á netfangið [email protected].
  2. Tilkynningar um kynferðislega misneytingu, misnotkun, og kynferðislegt áreiti í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð
    Allar tilkynningar eru unnar í trúnaði og hægt er að gefa nafnlausar tilkynningar. Þó skal bent á að auðveldara er fyrir ráðuneytið að vinna úr málum ef tilkynningaraðili gefur upp nafn og tengiliðaupplýsingar. Úrvinnsla mála og rannsókn fer eftir stöðluðu verklagi. Form fyrir tilkynningar um grun um kynferðislega misneytingu, misnotkun, og kynferðislegt áreiti í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð má nálgast hér.
Migrated LiSA component: Unknown:5fbcdc49-c34e-409d-a5e4-2452afa0cc31
Needs reconstruction with the correct Veva component. Source LiSA page: 36f62520-54ce-4611-b7c6-9c2e6f23b284
Original property values
{"TagsQueryStringVariableName":"tags","TagsAppendQueryString":"false","ListObjectListId":"dab6aa9f-98f3-11ee-b87f-005056bcde1f","DetailPageId":"","IncludeSubItems":"false","FilterExpression":"","OrderByExpression":"","FilterByOwner":"false","Count":"0","Offset":"0","PageNumberQueryStringVariable":"","XsltTemplate":"a661e132-946f-11e6-9409-005056bc4d74","PredefinedTags":"","TagFilterType":"All","TagsUseQueryString":"false","TagsUseContext":"false","DisableCache":"false"}