Ungliðastöður á vegum Sameinuðu þjóðanna (e. Junior Professional Officers)

Á vegum Sameinuðu þjóðanna er starfrækt ungliðaverkefni (e. Junior Professional Officer Programme) þar sem ungu og efnilegu fólki er gefið tækifæri á að öðlast starfsreynslu hjá stofnunum Sameinuðu þjóðunum. Oftast er um að ræða P2-stöðugildi þar sem kröfur eru gerðar um að umsækjendur hafi lokið meistaragráðu á viðeigandi sviði, séu með a.m.k. tveggja ára tengda starfsreynslu og ekki eldri en 32 ára.

Utanríkisráðuneytið hefur iðulega lagt áherslu á að manna stöður í þróunarlöndum, fremur en í höfuðstöðvum, og eru nú sex ungliðar að störfum hjá samstarfsstofnunum Íslands á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

Ungliðastöður eru auglýstar reglulega og birtist þá linkur inn á Starfatorg á þessarri síðu þar sem hægt er að sækja um.

Almennar upplýsingar um ungliðastöður hjá Sameinuðu þjóðunum.

JPO Service CentreUNICEF JPO Programme