Samstarf við félagasamtök

Utanríkisráðuneytið hefur um árabil átt í góðu samstarfi við félagasamtök á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar og hefur fjölbreytni verkefna aukist mjög á undanförnum árum. Félagasamtök eru mikilvægir samstarfsaðilar í þróunarsamvinnu einkum vegna nálægðar sinnar við grasrótina og þar sem þau hafa oftar en ekki gott aðgengi til að beita sér á vettvangi þar sem átök eru til staðar og aðgengi erfitt eða takmarkað.

Unnið er í samræmi við eftirfarandi lykil stefnur og skjöl:

Stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnuStefnumið hvað varðar samstarf við félagasamtökTilmæli OECD-DAC varðandi samstarf við borgarasamfélagið

Áherslur í samstarfi við félagasamtök

Áherslumál í samstarfi við félagasamtök byggja á stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Yfirmarkmið stefnunnar er útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði og grundvallast á framtíðarsýn heimsmarkmiða Sameinuðu Þjóðanna. Mannréttindi, jafnrétti kynjanna og umhverfis- og loftlagsmál eru enn fremur bæði sértæk og þverlæg áhersluatriði.

Félagasamtök gegna því mikilvæga hlutverki að styðja upplýsingagjöf til almennings og veita alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands stuðning og aðhald. Samstarf við félagasamtök stuðlar að hugmyndaskiptum og þróun aðferða sem að styðja við árangursmiðaða og skilvirka þróunarsamvinnu.

Samstarf við félagasamtök skal taka mið af þróunarsamvinnustefnu Íslands og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Einnig er lögð áhersla á fjölbreytni og nýsköpun í verkefnum.

Styrkir til félagasamtaka

Undir hatti samstarfs við félagasamtök býður utanríkisráðuneytið uppá styrkveitingar til þróunarsamvinnuverkefna, þ.m.t. styttri verkefna, nýliðaverkefna og langtíma verkefna. Einnig geta félög sótt um kynningar- og fræðslustyrki. Styrkir til félagasamtaka til mannúðaraðstoðar eru bundnir vegna rammasamninga og ekki auglýstir sérstaklega.

Nánari upplýsingar á umsóknarsíðu vegna styrkja til félagasamtaka

Verkefni félagasamtaka

Verkefni félagasamtaka og yfirlit yfir stuðning má finna á www.openaid.is

Sjá einnig