Styrkir til félagasamtaka í þróunarsamvinnu

Íslensk félagasamtök gegna veigamiklu hlutverki við að framfylgja stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu. Nálægð við grasrótina, víðtæk reynsla og fjölbreytt verkefni á vettvangi gera þau að mikilvægum samstarfsaðilum í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Til að styrkja stoðir íslenskra félagasamtaka og efla enn frekar þekkingu og reynslu í þróunarsamvinnu styður utanríkisráðuneytið við fjölda félagasamtaka á ári hverju.

Þátttaka og samstarf ólíkra aðila er grundvöllur þess að hægt sé að draga úr fátækt, stuðla að framförum og aukinni velferð í þróunarríkjum og efla sjálfbæran vöxt samfélaga.

Utanríkisráðuneytið auglýsir reglulega eftir umsóknum og úthlutar styrkjum til þróunarsamvinnuverkefna, þ.m.t. styttri verkefna, langtíma verkefna og nýliðaverkefna. Með því að bjóða upp á mismunandi tegundir styrkja er hægt að styðja við fjölbreyttari verkefni og gefa jafnt stórum sem smáum styrkhæfum félagasamtökum kost á þátttöku.

Einnig er boðið upp á kynningar- og fræðslustyrki sem annars vegar eiga að auka þekkingu almennings á Íslandi á þróunarsamvinnu og hins vegar að stuðla að getuuppbyggingu félagasamtaka í þróunarsamvinnu.

Auglýsing er birt hér, en allar leiðbeiningar og gögn vegna styrkumsókna má einnig finna á þessari síðu.

Styrkjum er úthlutað samkvæmt settum reglum utanríkisráðuneytisins um styrki til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu nr. 1035/2020,  verklagsreglum vegna samstarfs við félagasamtök um þróunarsamvinnuverkefni og rammasamninga við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu og félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Jafnframt er tekið mið af stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu 2024 - 2028 og stefnumiðum um samstarf við félagasamtök 2024.

 

Styrkhæfir samtök

Styrkveitingar eru takmarkaðar við íslensk félagasamtök og þurfa þau að uppfylla a.m.k. eftirtalin skilyrði:

  • Vera skráð í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra sem félagasamtök, skv. rekstrarformi eða atvinnugreinaflokkun, eða vera skráð sem félag til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri skv. lögum nr. 119/2019;
  • ekki vera rekin í hagnaðarskyni (e. non-profit);
  • hafa sett sér lög og starfandi stjórn;
  • félagsmenn, styrktaraðilar eða stuðningsaðilar séu minnst 30 talsins;
  • hafa lagt fram staðfestan ársreikning;
  • uppfylla kröfur Ríkisendurskoðunar um meðferð og vörslu fjármuna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

Nánar um styrkhæfi og kröfur má lesa í reglum nr. 1035/2020 og í verklagsreglum vegna samstarf við félagasamtök um þróunarsamvinnuverkefni.

Þróunarsamvinnuverkefni

Verkefni skulu samræmast áherslum íslenskra stjórnvalda í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Þróunarsamvinnuverkefni skulu koma til framkvæmda í ríkjum á lista þróunarsamvinnunefndar OECD DAC um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar. Kynningar-og fræðsluverkefni skulu koma til framkvæmda á Íslandi.

Félagasamtök geta sótt um þrjár tegundir styrkja til þróunarsamvinnuverkefna:

  • Nýliðaverkefni
  • Styttri þróunarsamvinnuverkefni
  • Langtíma þróunarsamvinnuverkefni

Hægt er að sækja um styrki til tvenns konar kynningar- og fræðsluverkefni:

  • Kynningarverkefni sem miða að því að efla þekkingu almennings á þróunarsamvinnu
  • Fræðsluverkefni sem miða að því að efla þekkingu og stofnanagetu félagasamtaka í þróunarsamvinnu

Félagasamtök sem hafa ekki áður fengið styrk hjá utanríkisráðuneytinu til þróunarsamvinnuverkefnis skulu sækja um nýliðastyrk. Styrkurinn er til eins árs og hámarksupphæð styrksins er 4 m.kr.

Skammtíma þróunarsamvinnuverkefni eru afmörkuð verkefni reyndra félagasamtaka til eins árs. Slík verkefni mega vera undirbúningsfasi fyrir stærra verkefni.

Langtíma þróunarsamvinnuverkefni geta staðið yfir í nokkur ár, en hafa afmarkað upphaf og endi. Styrkveiting getur mest verið til 4 ára. Það er síðar hægt að sækja um framhaldsstyrk til slíkra verkefna, en þá þurfa niðurstöður úttektar að liggja fyrir sem sýna fram á ásættanlegan framgang verkefnisins.

Kynningar- og fræðsluverkefni eru til eins árs og er ætlað að auka þekkingu almennings á alþjóðlegri þróunarsamvinnu eða efla stofnanagetu umsækjenda á sviði þróunarsamvinnu. Hámarksupphæð styrks er 4 m.kr.

Hér má sjá yfirlit yfir þau félög sem fengu úthlutað styrkjum 2022, [2023](https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Utanrikisraduneytid/PDF-skjol/Yfirlit yfir félagasamtök sem hlotið hafa styrk til þróunarsamvinnuverkefna.pdf) og 2024.

Mannúðaraðstoð

Mannúðaraðstoð á vegum félagasamtaka fer fram í gegnum rammasamninga þannig að styrkjum er ekki úthlutað sérstaklega til stakra mannúðarverkefna eins og stendur.

Rammasamningar

Ráðuneytið hefur gert tvær tegundir rammasamninga við félagasamtök, annars vegar við félagasamtök sem sinna verkefnum á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar, og hins vegar til félagasamtaka sem sinna kynningar- og fræðsluverkefnum í þróunarsamvinnu. Markmið samstarfsins er að auka árangur og skilvirkni verkefna og veita samtökunum fyrirsjáanleika í starfi.

Ráðist var í gerð slíkra samninga eftir úttekt á samstarfi ráðuneytisins við félagasamtök árið 2021. Rammasamningar eru gerðir til nokkurra ára í senn að undangenginni skoðun og mati á samstarfinu.

Skrifað var undir fjögurra ára rammasamninga um verkefni í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð í mars 2025 við fjögur íslensk félagasamtök; Hjálparstarf kirkjunnar, Barnaheill –Save the Children á Íslandi, Rauða krossinn á Íslandi og SOS Barnaþorpin á Íslandi.

Jafnframt hafa verið gerðir rammasamningar vegna kynningar- og fræðslumála við landsnefnd UNICEF á Íslandi, landsnefnd UN Women á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Umsóknarferli og úthlutun styrkja

Umsóknarfrestur um styrki til verkefna í þróunarsamvinnu og kynningar- og fræðsluverkefni er að öllu jafna sex vikur frá birtingu auglýsingar. Öllum umsóknum skulu fylgja gögn sem staðfesta styrkhæfi umsækjanda, ásamt fylgiskjölum og upplýsingum sem nauðsynlegar eru samkvæmt verklagsreglum um samstarf við félagasamtök.

Matshópur, skipaður þremur sérfræðingum, metur umsóknir á faglegum forsendum og gefur þeim einkunnir sem byggja á fyrirfram ákveðnum gæðaviðmiðum.

Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti matshópsins. Ráðuneytið svarar öllum umsóknum skriflega.

Eyðublöð og önnur gögn

Öll eyðublöð vegna styrkja má nálgast hér fyrir neðan. Athygli er vakin á því að eyðublöð og gögn eru ekki þau sömu fyrir þróunarsamvinnuverkefni og kynningar- og fræðsluverkefni.

Fyrirspurnir og umsóknir má senda á [email protected]. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að kalla eftir viðbótargögnum og skýringum ef þörf krefur.