Úttektir

Úttektir skipa mikilvægan sess í verklagi þróunarsamvinnu, enda skila þær þekkingu um árangur verkefna og þann lærdóm sem draga má af því sem vel gengur og þess sem betur mætti fara. Unnið er eftir úttektarstefnu Íslands fyrir 2024-2028 þar sem markmið og framkvæmd úttekta eru skilgreind í samræmi við alþjóðlegt verklag og kröfur OECD/DAC um úttektir. Umsýsla með úttektum á sviði þróunarsamvinnu er á hendi skrifstofu innri málefna sem starfar óháð framkvæmd þróunarsamvinnu og heyrir undir ráðuneytisstjóra.

Miðað er við að úttektir séu unnar af óháðum aðilum í kjölfar útboðs ef þess er kostur, og leitast við að nýta innlenda sérfræðiþekkingu í úttektum á staðbundum verkefnum í samstarfslöndum. Jafnframt skal gæta ráðdeildar við eftirlit til að hámarka nýtingu þróunarsamvinnufjár. Leitast er við að nýta niðurstöður úttekta til að bæta hagkvæmni, skilvirkni, markvirkni og sjálfbærni í öllu starfi Íslands á sviði þróunarsamvinnu, og kynna niðurstöður úttekta fyrir haghöfum, m.a. íslenskum almenningi. Úttektir af hálfu Íslands meta einnig framlag á sviði þverlægra málefna, umhverfisþátta, jafnréttismála og mannréttinda eftir því sem við á.

Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi og málefnastarfi um eftirlit og úttektir er mikilvægur þáttur í starfi á þessu sviði. Þetta felur m.a. í sér þátttöku í málefnastarfi norræns hóps um eftirlit og úttektir og þátttöku í alþjóðabandalagi um úttektir á COVID-19. Jafnframt er Ísland virkt á vettvangi OECD/DAC og eru úttektir Íslands birtar í gagnabanka DAC. Alþjóðlegt samstarf felur m.a. í sér samstarf við nágrannaríkin hvað varðar eftirlit og úttektir með fjölþjóðlegum stofnunum og þeirra starfi.

Úttektir árið 2025

Áætlað er að vinna eftirfarandi úttektarstarf 2025 á vegum utanríkisráðuneytisins. Listinn er þó ekki tæmandi og getur tekið breytingum.

Úttektir árið 2024

Eftirfarandi úttektarstarf var unnið árið 2024 á vegum utanríkisráðuneytisins.

Úttektir árið 2023

Eftirfarandi úttektarstarf var unnið árið 2023 á vegum utanríkisráðuneytisins.

Úttektir árið 2022

Eftirfarandi úttektarstarf var unnið árið 2022 á vegum utanríkisráðuneytisins.

Úttektir árið 2021

Eftirfarandi úttektarstarf var unnið árið 2021 á vegum utanríkisráðuneytisins.

Úttektar- og rýniskýrslur

SOS Barnaþorp – úttekt á verkefnum í Ngabu í Chikawawa héraði í Malaví (2024)Úttekt á verkefninu Haven Rescue Home í Kenía (2024)Hjálparstarf kirkjunnar - Miðannarúttekt á verkefni um stuðning við barnafjölskyldur sem búa við sárafátækt vegna HIV/alnæmis í Rakai og Lyantonde í Úganda (2024)Lokaúttekt á verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar um valdeflingu ungmenna í Kampala, Úganda (2024)Barnaheill – Úttekt á verkefni um að minnka ofbeldi og að vernda börn í skólum í Pujehun héraði, Síerra Leóne (2024)SOS Barnaþorp – miðannarúttekt á verkefninu Next Economy í Sómalílandi og Sómalíu (2023)Rauði Kross Íslands – Lokaúttekt á Community Resilience Programme (COMREP II), Malaví (2023)Final Evaluation Report January 2024 Save the Children.pdf (10,49 MB)

Miðannarúttekt á verkefni SOS Barnaþorpa um forvarnir og aðgerðir gegn kynferðislegri misneytingu á börnum í Ogou héraði í Tógó (2022)

Lokaskýrsla á enskuLokaskýrsla á frönskuSamantekt á frönskuBarnaheill - Úttekt á verkefni í Lýð­stjórnar­lýð­veld­inu Kongó (2022)Úttekt á stefnumiðum fyrir samstarf við frjáls félagasamtök og rammasamning við Rauða kross Íslands (2021)Samantekt á úttekt á samstarfi utanríkisráðuneytisins við frjáls félagasamtök (2021)EVALUATION OF ENZA: Final report (2018)Icelandic CSO Evaluation: Synthesis Report (2018)Icelandic CSO Evaluation: Icelandic Red Cross Support in Belarus (2018)Icelandic CSO Evaluation: ICA Support in Ethiopia (2018)Icelandic CSO Evaluation: Icelandic Red Cross Support in Malawi (2018)Icelandic CSO Evaluation: ICA Support in Uganda (2018)Hjálparstarf kirkjunnar - Úttekt á samþættu þróunarverkefni í Jijiga, Eþíópíu (2014)ABC Barnahjálp - Úttekt á skólabyggingu í Kenýa (2014)ICRC - External Review (2012)Barnaheill - Úttekt á verkefni í Úganda (2007-2013)