Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið - yfirlit
EES-samningnum er skipt í þrjá hluta, eða meginmál sem er 129 greinar, 49 bókanir og 22 viðauka. Þegar vísað er til EES-samningsins er oft átt við meginmálið, en strangt til tekið teljast allir þrír hlutarnir til EES-samningsins. Ákvæði bókananna kveða á um nánari beitingu reglna í meginmáli samningsins og viðaukarnir taka til mismunandi málefnasviða og þar er einnig að finna tilvísanir til afleiddrar löggjafar ESB, eða svokallaðra gerða (þær réttarreglur sem stofnanir ESB setja með heimild í stofnsáttmálunum, eða reglugerðir, tilskipanir, o.s.frv.). Einnig er að finna í viðaukunum skýringar á því hvernig gerðir eru teknar upp í EES-samninginn. Fjöldi yfirlýsinga fylgir lokagerð samningsins sem ekki teljast formlegur hluti hans.
Með EES-samningnum var leitast við að taka upp í einn þjóðréttarsamning verulegan hluta af regluverki Evrópusambandsins samkvæmt stofnsáttmálum þess og þeim réttarreglum sem eru leiddar af stofnsáttmálunum sem skýrir það hversu umfangsmikill samningurinn er. Eins er viðkomandi regluverk í stöðugri þróun og því var gert ráð fyrir því að unnt væri að taka nýjar reglur ESB-réttar upp í samninginn.
Með einföldun má segja að þýðingarmestu ákvæði meginmáls EES-samningsins séu efnislega samhljóða þeim þáttum sem varða fjórfrelsið í Rómarsáttmálanum sem var í gildi á þeim tíma, nú Sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins (e. Treaty on the Functioning of the European Union).
Hér á eftir fylgir meginmál samningsins ásamt bókunum og viðaukum.
Meginmál EES-samningsins
Hér má finna meginmál Samningsins um evrópska efnahagssvæðið (EES).
Á íslenskuÁ enskuViðaukar við EES-samninginn
Unnið er að því að gera viðauka við EES-samninginn aðgengilega á íslensku á ný. Þangað til er hægt að nálgast uppfærðan enskan texta gagnanna á vef EFTA-skrifstofunnar eða hafa samband í gegnum netfangið [email protected] til að óska eftir einstökum textum.
Aðrir textar
Unnið er að því að gera aðra texta tengda EES-samningnum, svo sem gerðir, yfirlýsingar og samþykktir, aðgengilegar á íslensku á ný. Þangað til er hægt að nálgast uppfærðan enskan texta gagnanna á vef EFTA-skrifstofunnar eða hafa samband í gegnum netfangið [email protected] til að óska eftir einstökum textum.
- Bókun 01 - um altæka aðlögun
- Bókun 02 - um framleiðsluvörur sem falla ekki undir gildissvið samningsins í samræmi við A-lið 3. mgr. 8. gr.
- Bókun 03 - um framleiðsluvörur sem um getur í B-lið 3. mgr. 8. gr samningsins
- Bókun 04 - um upprunareglur
- Bókun 05 - um fjáröflunartolla
- Bókun 06 - um söfnun lögboðins varaforða í Liechtenstein
- Bókun 07 - um magntakmarkanir sem Ísland má viðhalda
- Bókun 08 - um ríkiseinkasölur
- Bókun 09 - um viðskipti með fisk og aðrar sjávarafurðir
- Bókun 10 - um að einfalda skoðun og formsatriði vegna vöruflutninga
- Bókun 11 - um gagnkvæma aðstoð í tollamálum
- Bókun 12 - um samninga við þriðju lönd um samræmismat
- Bókun 13 - um að jöfnunartollum og aðgerðum gegn undirboðum verði ekki beitt
- Bókun 14 - um verslun með kola- og stálvörur
- Bókun 15 - um aðlögunartímabil vegna frjálsra fólksflutninga
- Bókun 16 - um ráðstafanir á sviði félagslegs öryggis varðandi aðlögunartímabil vegna frjálsra fólksflutninga
- Bókun 17 - varðandi 34. gr.
- Bókun 18 - um reglur aðila vegna framkvæmdar 43. gr.
- Bókun 19 - um flutninga á sjó
- Bókun 20 - um aðgang að skipgengum vatnaleiðum
- Bókun 21 um framkvæmd samkeppnisreglna sem gilda um fyrirtæki
- Bókun 22 - um skilgreiningu á „fyrirtæki“ og „veltu“ (56. gr.)
- Bókun 23 - um samvinnu milli eftirlitsstofnana (58. gr.)
- Bókun 24 - um samvinnu varðandi eftirlit með samfylkingum
- Bókun 25 - um samkeppni varðandi kol og stál
- Bókun 26 - um valdsvið og störf eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar
- Bókun 27 - um samvinnu á sviði ríkisaðstoðar
- Bókun 28 - um hugverkaréttindi
- Bókun 29 - um starfsþjálfun
- Bókun 30 - um sérstök ákvæði varðandi skipulagningu samvinnu á sviði hagskýrslugerðar
- Bókun 31 - um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins
- Bókun 32 - um fjárhagsfyrirkomulag vegna framkvæmdar 82. gr.
- Bókun 33 - um gerðardómsmeðferð
- Bókun 34 - um að dómstólar og réttir EFTA-ríkja geti farið fram á það að dómstóll Evrópubandalaganna taki ákvörðun um túlkun á EES-reglum sem samsvara EB-reglum
- Bókun 35 - um framkvæmd EES-reglna
- Bókun 36 - um stofnsamþykkt sameiginlegu EES-þingmannanefndarinnar
- Bókun 37 - með skrá sem kveðið er á um í 101. gr.
- Bókun 38 - um fjármagnskerfið
- Bókun 38a - um fjármagnskerfi evrópska efnahagssvæðisins
- Bókun 38b - um fjármagnskerfi EES (2009-2014)
- Bókun 38c - um fjármagnskerfi EES (2014-2021)
- Bókun 39 - um evrópsku mynteininguna (ECU)
- Bókun 40 - um Svalbarða
- Bókun 41 - um gildandi samninga
- Bókun 42 - tvíhliða fyrirkomulag varðandi tilteknar landbúnaðarafurðir
- Bókun 43 - um samninginn milli EBE og lýðveldisins Austurríkis varðandi umflutning vara á vegum og járnbrautum
- Bókun 44 - um verndarráðstafanir í tengslum við stækkanir evrópska efnahagssvæðisins
- Bókun 45 - um aðlögunartímabil varðandi Spán og Portúgal
- Bókun 46 - um þróunarsamvinnu í sjávarútvegi
- Bókun 47 - um afnám tæknilegra hindrana í viðskiptum með vín
- Bókun 48 varðandi 105. og 111. gr.
- Bókun 49 - um Ceuta og Melilla
- Bókanir við EES-samninginn á ensku: Protocols | European Free Trade Association (efta.int)
- Viðauki 01 - Heilbrigði dýra og plantna
- Viðauki 02a - Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun
- Viðauki 02b - Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun
- Viðauki 03 - Skaðsemisábyrgð
- Viðauki 04 - Orka
- Viðauki 05 - Frelsi launþega til flutninga
- Viðauki 06 - Félagslegt öryggi
- Viðauki 07 - Viðurkenning á faglegri menntun og hæfi
- Viðauki 08 - Staðfesturéttur
- Viðauki 09 - Fjármálaþjónusta
- Viðauki 10 - Almenn þjónusta
- Viðauki 11 - Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið
- Viðauki 12 - Frjálsir fjármagnsflutningar
- Viðauki 13a - Flutningastarfsemi
- Viðauki 13b - Flutningastarfsemi
- Viðauki 13c - Flutningastarfsemi
- Viðauki 14 - Samkeppni
- Viðauki 15 - Ríkisaðstoð
- Viðauki 16 - Opinber innkaup
- Viðauki 17 - Hugverkaréttindi
- Viðauki 18 - Öryggi og hollustuhættir á vinnustöðum, vinnuréttur og jafnrétti
- Viðauki 19 - Neytendavernd
- Viðauki 20 - Umhverfismál
- Viðauki 21a - Hagskýrslugerð
- Viðauki 21b - Hagskýrslugerð
- Viðauki 21c - Hagskýrslugerð
- Viðauki 22 - Félagaréttur
- Viðaukar við EES-samninginn á ensku: The EEA Agreement | European Free Trade Association (efta.int)
- Lokagerð við EES-samninginn á ensku: DRAFT 22 (efta.int)
- Ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar á ensku frá árinu 1994 og á íslensku frá og með árinu 2011: Adopted Joint Committee Decisions | European Free Trade Association (efta.int)
- Listi yfir ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar sem teknar hafa verið með stjórnskipulegum fyrirvara frá árinu 1994: list-of-constitutional-requirements.pdf (efta.int)
- Listi yfir ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar sem teknar hafa verið með stjórnskipulegum fyrirvara sem hefur ekki enn verið aflétt: list-awaited-notifications.pdf (efta.int)
Vefsíðan EEA-Lex þar sem hægt er að sjá stöðu ESB-gerða sem hafa verið teknar upp í EES-samninginn eða verið er að meta hvort séu EES-tækar: EEA-Lex | European Free Trade Association (efta.int)
Viðaukar, gerðir, yfirlýsingar og samþykktir við EES-samninginn eru tímabundið óaðgengilegar á ensku. Unnið er að því að gera efnið aðgengilegt á ný. Þangað til er hægt að nálgast uppfærðan enskan texta gagnanna á vef EFTA-skrifstofunnar eða hafa samband í gegnum netfangið [email protected] til að óska eftir einstökum textum.
Samningurinn um eftirlitsstofnun og dómstól á íslensku | á ensku.