Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið

Laugardaginn 29. ágúst 2026 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið var um hvort hefja skyldi á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.

Á þessari vefsíðu má finna upplýsingar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar, efni frá aðildarviðræðum Íslands sem fram fóru árin 2009-2013 og annað gagnlegt efni sem málið varðar.

Upplýsingamolar

Spurningar og svör um þjóðaratkvæðagreiðsluna

Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um það hvort íslensk stjórnvöld eigi að halda áfram aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Ef kjósendur svara þeirri spurningu játandi fara aðildarviðræður í kjölfarið af stað og þegar og ef samningar nást mun sá samningur ganga til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið.

Með þingsályktun nr. 14/157, sem Alþingi samþykkti hinn 28. maí 2026, var ákveðið að spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem fram fer 29. ágúst nk., skuli hljóða svo:

„Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“

Svarmöguleikar verði þessir:

  • Já.
  • Nei.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024 segir eftirfarandi: „ Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fer fram eigi síðar en árið 2027.“

Nei. Umrædd þjóðaratkvæðagreiðsla snýst einvörðungu um hvort íslensk stjórnvöld eigi að halda áfram aðildarviðræðum við ESB sem þáverandi stjórnvöld ákváðu að setja á ís árið 2013.

Íslenska þjóðin mun ávallt hafa síðasta orðið um mögulega aðild að ESB, sem yrði sömuleiðis borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu að undangengnum aðildarviðræðum.

Það er mat ríkisstjórnarinnar að áframhald aðildarviðræðna við ESB sé svo viðamikið hagsmunamál að ekki komi annað til greina en að leita leiðsagnar þjóðarinnar í þeim efnum. Þjóðin hafði ekki beina aðkomu að því að hefja ferlið árið 2009 og nú er tækifæri til að leiðrétta það. Þá liggur fyrir að þjóðin getur ekki tekið afstöðu til aðildar nema að aðildarviðræðum verði haldið áfram og þeim lokið með samningi um aðild Íslands að ESB sem síðan yrði lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.

Verði niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem stefnt er að því að fari fram 29. ágúst sú að halda áfram aðildarviðræðum kæmu íslensk stjórnvöld þeirri ósk þjóðarinnar á framfæri við ESB. Framhald viðræðna yrði síðan staðfest á formlegri ríkjaráðstefnu milli Íslands og aðildarríkjanna.

Þar sem aðildarumsókn Íslands telst enn í gildi yrði í reynd hægt að taka upp þráðinn aftur verði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu sú að ákveðið verði að ganga til áframhaldandi aðildarviðræðna við ESB.

Í kjölfarið færu formlegar aðildarviðræður fram þar sem unnið yrði út frá samningsmarkmiðum sem Ísland hefði sett sér.

Ef niðurstaðan er nei þá verður ekki farið af stað aftur í viðræður.

Þó að aðildarviðræðum Íslands hafi verið hætt árið 2013 var aðildarumsókn Íslands frá árinu 2009 aldrei dregin til baka með lögformlegum hætti. Framkvæmdastjórn ESB hefur þvert á móti staðfest að umsóknin sé enn í gildi eins og fram hefur komið í fréttum, m.a. í tengslum við heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, til Íslands í júlí 2025.

Viðræðum um aðild að Evrópusambandinu er skipt upp í 35 samningskafla á hinum ýmsu málefnasviðum, þar af 33 efniskafla. Þegar hlé var gert á aðildarviðræðum Íslands gagnvart Evrópusambandinu síðast höfðu 27 samningskaflar verið opnaðir af efnisköflunum 33. Að auki hafði Ísland lagt fram samningsafstöðu í tveimur köflum til viðbótar. Alls hafði viðræðum vegna 11 samningskafla verið lokið.

Hægt er að kynna sér framvindu og stöðu í viðræðunum eins og þær stóðu árið 2013 í skýrslu utanríkisráðherra sem vísað er til í ítarefni neðar á þessari síðu.

Nei.

Viðræður hefjast ekki nema að fengnu samþykki þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.

Greidd verða atkvæði um hvort halda skuli áfram viðræðum um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ef niðurstaðan verður jákvæð geta stjórnvöld hafið viðræður að nýju. Niðurstaða slíkra viðræðna yrði borin undir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu.