/
Hvað er átt við með að hefja að nýju aðildarviðræður?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Hvað er átt við með því að hefja að nýju aðildarviðræður?
Þó að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hafi verið settar á ís árið 2013 var aðildarumsókn Íslands frá árinu 2009 aldrei dregin til baka með lögformlegum hætti. Framkvæmdastjórn ESB hefur þvert á móti staðfest að umsóknin sé enn í gildi eins og fram hefur komið í fréttum, m.a. í tengslum við heimsókn Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, til Íslands í júlí 2025.
Gert er ítarlega grein fyrir stöðu aðildarumsóknarinnar í minnisblaði utanríkisráðuneytisins til utanríkismálanefndar Alþingis, frá því í ágúst 2025.
Heimildir:
Minnisblað utanríkisráðuneytisins: Greinargerð um stöðu umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu til utanríkismálanefndar Alþingis frá því í ágúst 2025.
Ítarefni:
Evrópuvefurinn: Hvort var gert hlé á aðildarviðræðum Íslands og ESB eða þeim slitið?