Samningsmarkmið 2009-2013
Til upplýsingar: þessi upplýsingasíða var sett í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
-------
Umfangsmikil vinna við mótun samningsmarkmiða Íslands fór fram í undirbúningi fyrir og í tengslum við aðildarviðræðurnar 2009 - 2013. Í athugasemd við tillögu til þeirrar þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (ESB) sem samþykkt var á 137. löggjafarþingi árið 2009 var tilgreint að meðal grundvallar hagsmuna Íslands væri:
- Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra.
- Að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni, sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar og hlutdeild í deilistofnum og eins víðtækt forsvar í hagsmunagæslu í sjávarútvegi í alþjóðasamningum og hægt er.
- Að tryggja öflugan íslenskan landbúnað á grundvelli fæðuöryggis og matvælaöryggis.
- Að tryggja lýðræðislegan rétt til að stýra almannaþjónustu á félagslegum forsendum.
- Að standa vörð um réttindi launafólks og vinnurétt.
- Að ná fram hagstæðu og vaxtarhvetjandi samkeppnis- og starfsumhverfi fyrir atvinnulíf á Íslandi um leið og sérstöðu vegna sérstakra aðstæðna er gætt.
Þessi sjónarmið eiga enn við, en jafnframt var á sínum tíma mikilvæga leiðsögn að finna í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar við þinglega meðferð þingsályktunartillögunnar árið 2009. Í álitinu var tilgreint að megináherslur Íslands í aðildarviðræðum við ESB kæmu til með að verða á sviði orku- og auðlindamála, sjávarútvegsmála, landbúnaðar- og byggðamála, umhverfismála, atvinnu- og iðnaðarmála, almannaþjónustu og félagslegra mála, gjaldmiðilsmála, EES-mála, öryggis- og varnarmála, skatta- og tollamála auk fjármála og fjárlaga ESB.
Á þessari síðu má finna ýmis gögn í tengslum við aðildarviðræður Íslands og ESB.
Utanríkisráðuneytið mun bæta við gögnum eftir því sem tilefni er til og nær dregur boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ítarefni
Ýmislegt efni
Þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (2009)Nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar Alþingis (2009) um þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (2009)Fréttatilkynning og bréf utanríkisráðherra um að Ísland verði ekki lengur í hópi umsóknarríkja, 12. mars 2015Málaflokkar aðildarviðræðnanna 2009 til 2013
Gögn frá Íslandi tengslum við viðræðurnar 2009 til 2013Sjá alla málaflokka aðildarviðræðnanna 2009 til 2013Skýrslur
Skýrsla um aðildarviðræður Íslands og ESB: Framvinda og staða (2013)Úttekt á stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið og þróun sambandsins - skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands (2014)Aðildarviðræður Íslands við ESB – skýrsla Alþjóðamálastofnunar HÍ (2014)Evrópusamvinna