Hvað eru aðildarviðræður

Til upplýsingar: þessi upplýsingasíða var sett í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.

-------

Aðildarviðræður eru formlegar samningaviðræður milli umsóknarlands og aðildarríkja Evrópusambandsins þar sem löggjöf umsóknarlandsins er greind og borin saman við löggjöf sambandsins í 35 skilgreindum málaflokkum, kafla fyrir kafla. Í viðræðunum getur umsóknarríkið sett fram eigin samningsafstöðu og sótt um sérlausnir áður en samningur er lagður fyrir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu.

Upplýsingamolar

Ítarefni

Utanríkisráðuneytið mun bæta við gögnum eftir því sem tilefni er til og nær dregur boðaðri þjóðaratkvæðagreiðslu.

Einnig má finna ýmis gögn í upplýsingamolum.