/

Hvað er IPA-stuðningur?

{image.Description}
Mynd af 5 evruseðli

Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.

--------

Evrópusambandið veitir ríkjum sem hafa sótt um aðild að sambandinu stuðning samkvæmt svokallaðri IPA-áætlun (e. Instrument for Pre-accession Assistance, eða sjóð sem fjármagnar aðstoð við umsóknarríki ESB). IPA-stuðningi er meðal annars ætlað að aðstoða við undirbúning og uppbyggingu stofnana komi til aðildar og að tryggja stuðning við byggðaþróun, mannauðsþróun og stuðning við dreifbýlisþróun. 

Gerður var rammasamningur milli Íslands og Evrópusambandsins um þessa fjármögnunarleið, í viðræðunum 2009-2013, sem fullgiltur var með heimild frá Alþingi, sbr. þingsályktun nr. 46/140

Eftir að hlé var gert á viðræðum árið 2013 hefur enginn stuðningur verið veittur af IPA-áætlun til Íslands enda Ísland ekki í virku viðræðuferli gagnvart ESB. Á meðan viðræðum stóð árin 2009-2013 hafði ESB veitt vilyrði fyrir IPA-stuðningi að fjárhæð 40 milljónum evra (5,8 milljarðar kr. á núverandi gengi). Hér ber að athuga að um var að ræða vilyrði en ekki greitt fjármagn. Greitt fjármagn var mun minna þar sem ESB hætti stuðningi við verkefni árið 2013 þegar fyrir lá að þáverandi ríkisstjórn myndi ekki halda aðildarviðræðum áfram. 

Þau verkefni sem höfðu hlotið vilyrði fyrir stuðningi fólu ekki í sér aðlögun, enda þótt sum þeirra hefðu unnið að þarfagreiningu og undirbúningi slíkrar aðlögunar síðar, ef til aðildar kæmi. Í mörgum tilvikum var um að ræða verkefni til að vinna að skyldum Íslands samkvæmt EES-samningnum þar sem pottur hafði verið brotinn. Þannig var helst horft til verkefna sem myndu nýtast óháð því hvort af aðild yrði eða ekki. Tilraunaverkefni vegna byggðastuðnings voru annars eðlis og ætluð til að efla þekkingu á fyrirkomulagi byggðastuðnings innan ESB meðal haghafa í umsóknarríkjunum.

Ítarefni og heimildir:

Þingsályktun 46/140 um samþykkt rammasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um reglur um samstarf er varðar fjárhagsaðstoð ESB við Ísland innan ramma stuðningsaðgerða sjóðs er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki ESB (IPA).

Skýrsla utanríkisráðherra um stöðu og framvindu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið frá apríl 2013.

Vefsíða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um stuðningsaðgerða sjóð er fjármagnar aðstoð við umsóknarríki ESB (IPA).

Evrópuvefurinn, 2012, Hvað eru IPA-styrkir og hverjir geta sótt um þá?, útgáfudagur 17.08.2012