Tæknilegar tilkynningar

Leiðbeiningar um tilkynningar á tæknilegum reglum á grundvelli EES-samningsins

Tilkynningarskylda varðandi tæknilegar reglur er mikilvægur þáttur í samstarfi Íslands innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þegar stjórnvöld hyggjast setja nýjar tæknilegar reglur um vörur eða fjarþjónustu þarf að tilkynna drög að reglunum áður en þær eru formlega samþykktar. Tilgangurinn er að tryggja gagnsæi og koma í veg fyrir að ólík landslög og reglur skapi óþarfar hindranir í viðskiptum milli ríkja. Með þessu fá önnur EES-ríki og alþjóðastofnanir tækifæri til að fara yfir fyrirhugaðar reglur og gera athugasemdir áður en þær taka gildi.

Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu kröfum um tilkynningarferlið, birtingu draga að reglum, biðtíma áður en reglur eru settar og samskiptum við Eftirlitsstofnun EFTA og viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.

Hlutaðeigandi stjórnvöld skulu setja tilkynningu um fyrirhugaðar tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustu í TRIS-TBT-gagnagrunn Evrópusambandsins þegar drögin að reglunum eru efnislega fullbúin. Jafnframt skal senda tölvupóst til viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins ([email protected]) til að upplýsa um að tilkynning hafi verið vistuð í TRIS-TBT-gagnagrunninum og viðskiptaskrifstofa upplýsir Eftirlitsstofnun EFTA ([email protected]). Hér er að finna leiðbeiningar varðandi tilkynningarferilinn.

Fresta skal formlegri setningu tæknilegra reglna um vörur um þrjá mánuði frá þeim degi sem tilkynnt var um fyrirhugaða setningu reglnanna til alþjóðastofnana en um fjóra mánuði þegar um er að ræða tæknilegar reglur um fjarþjónustu.

Að biðtíma loknum er mikilvægt að senda viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins ([email protected]) lokatexta reglunnar á íslensku og einu opinberu ESB-tungumáli og í word-skjölum. Viðskiptaskrifstofa framsendir skjölin Eftirlitsstofnun EFTA ([email protected]).

Markmiðið er að koma í veg fyrir að tæknilegar viðskiptahindranir myndist á innri markaðnum vegna ólíkra krafna eða viðmiðana í landsrétti einstakra ríkja. Auk þess er takmarkið að auka gegnsæi. Með því að skapa gegnsæi með tilkynningunum geta ríki brugðist við ef þau sjá að önnur ríki hafa í hyggju að setja reglur sem hafa í för með sér viðskiptahindranir. Einungis má heimila viðskiptahindranir, sem stafa af tæknilegum reglum, í tengslum við vörur ef þær eru nauðsynlegar til að uppfylla grunnkröfur og þjóna hagsmunum almennings sem þær skapa megintryggingu fyrir.

Lög nr. 57/2000 um skipti á upplýsingum um tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustuReglugerð nr. 440/2024 um tilkynningar á tæknilegum reglum um vörur fjarþjónustuTilskipun (ESB) 2015/1535 Vefsíða Eftirlitsstofnunar EFTA

Allar tæknilegar reglur sem tilkynntar hafa verið samkvæmt upplýsingakerfi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á grundvelli tilskipana 98/34/EB og (ESB) 2015/1535.

Mælt er með að ráðuneyti og stofnanir skrái sig á póstlista TRIS til að fá sendar tilkynningar úr þeim málaflokkum sem við á.