Upplýsingar um bókun 35

Ísland, Evrópusambandið (27 aðildarríki), Noregur og Liechtenstein hafa gert með sér samning til að auðvelda viðskipti og samstarf milli sín. Þessi samningur heitir EES-samningurinn. Hann auðveldar til dæmis fólki að ferðast, stunda atvinnu, sækja sér menntun og þjónustu í öllum ríkjunum. Til að auðvelda samstarfið og tryggja réttindi fólks og fyrirtækja  eru sameiginlegar reglur sem gilda jafnt í öllum 30 ríkjunum sem samningurinn nær til. Þessar reglur eru oft kallaðar EES-reglur.

Á Íslandi gilda bara íslenskar reglur. Til þess að EES-reglur geti tekið gildi á Íslandi þurfa þær að verða hluti af íslenskum lögum. Alþingi gerir það með því að setja lög.

Stundum hefur Alþingi sett önnur lög sem rekast á við lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum. Þá þurfa dómstólar að ákveða hvor lögin eiga að gilda.

Bókun 35 - og frumvarpið um bókun 35 - fjalla um hvernig á að leysa úr því þegar lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum rekast á við aðrar íslenskar reglur. Þá eiga lögin sem gera EES-reglurnar að íslenskum reglum að gilda. Það er til þess að fólk og fyrirtæki á Íslandi, í Noregi, Liechtenstein og ríkjum ESB þurfi að fara eftir sömu reglum og að þau geti alls staðar notið sömu réttinda.

Með því að samþykkja ný lög um bókun 35 er ekki verið að gefa öðrum en Alþingi leyfi til að setja lög á Íslandi. Alþingi setur áfram lögin á Íslandi. Og þar sem Alþingi setur áfram öll lög á Íslandi þá er ekki verið að brjóta stjórnarskrána.

Alþingi getur alltaf ákveðið að setja lög sem brjóta gegn EES-reglum. Þá segir frumvarpið um bókun 35 að Alþingi þurfi að taka það skýrt fram. Hins vegar viljum við ekki að það gerist óvart. Ef það gerist óvart er hætta á að fólk njóti ekki réttinda sinna.

Það eru mörg dæmi um að Alþingi hafi sett reglur um hvaða lög eiga að gilda þegar lög rekast á.

Nýleg dæmi sýna að fólk fær ekki rétt sinn sem það á vegna EES-samningsins af því að reglurnar voru ekki í lagi. Eitt dæmi er um unga lækni. Hún fékk ekki greitt úr Fæðingarorlofssjóði. Ef reglurnar hefðu verið rétt notaðar, hefði hún fengið það sem hún átti rétt á samkvæmt EES-reglunum.

Spurningar og svör um bókun 35

Ítarefni

Ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi lagafrumvarp um breytingar á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (bókun 35). Málið var einnig lagt fram á 156. löggjafarþingi og í tíð fyrri ríkisstjórnar en hlaut þá ekki afgreiðslu. Þá var einnig lögð fram skýrsla á Alþingi sem fjallar um lykilþætti málsins sem varðar innleiðingu og framkvæmd bókunar 35 hér á landi.

Hér má finna hlekki á gögn sem varða málið: