/
Ferill aðildarumsóknar Íslands árið 2009 - 2013
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Aðildarumsókn Íslands er enn í gildi þó hlé hafi verið gert á viðræðum. Fjallað er um stöðu umsóknarinnar í sérstakri greinargerð sem utanríkisráðuneytið vann fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í ágúst 2025.
Þar kemur eftirfarandi fram:
- Ísland sótti um aðild að ESB 17. júlí 2009 með bréfi forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
- Í júní 2010 samþykkti leiðtogaráð ESB einróma að hefja viðræður og veita Íslandi stöðu umsóknarríkis.
- Vorið 2013 ákvað ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að gera hlé á viðræðum.
- Í mars 2015 sendi utanríkisráðherra bréf til formennskuríkis ESB þar sem talað var um að stöðva aðildarviðræður að fullu og að það væri bjargföst afstaða íslenskra stjórnvalda að ekki skuli líta á Ísland sem umsóknarríki.
- Tvívegis var lagt upp með að leggja fram þingsályktunartillögu um formlega afturköllun en hvorug hlaut brautargengi og afgreiðslu Alþingis.
- Talsmaður stækkunarsviðs ESB sagði 15. janúar 2025 að aðildarumsókn Íslands væri enn í gildi þar sem hún hefði aldrei verið formlega afturkölluð.
- Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði á Íslandi 17. júlí 2025 að sambandið liti svo á að umsókn Íslands væri enn í gildi.
- Reglugerð ESB frá 2021 um fjárhagslegan stuðning á undan aðild tilgreinir Ísland sem umsóknarríki og staðfestir að umsóknin er í gildi.
- ESB hefur aldrei litið svo á að Ísland hafi dregið umsókn sína formlega til baka.
Heimild:
Sérstök greinagerð utanríkisráðuneytisins fyrir utanríkismálanefnd Alþingis, ágúst 2025.
Ítarefni:
Sjá stöðu samningaviðræðna Íslands og ESB árið 2013 þegar hlé var gert á viðræðum (2013).