/

Hver voru helstu samningsmarkmið Íslands á sviði skattamála í aðildarviðræðunum árin 2009 - 2013?

{image.Description}
Litrík hús í Reykjavík

Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.

--------

Hver voru helstu samningsmarkmið Íslands á sviði skattamála í aðildarviðræðunum árin 2009 - 2013 og hver var staðan þegar aðildarviðræður voru settar á ís árið 2013?

Fjallað er um skattamál í 16. kafla aðildarviðræðna. Kaflinn var opnaður 18. desember 2012. Viðræður stóðu yfir þegar hlé var gert.

 Ísland fór fram á: 

  • Undanþágu frá virðisaukaskatti á farþegaflutninga, starfsemi rithöfunda og tónskálda og útfararþjónustu.
  • Heimild til þess að leggja lægri virðisaukaskatt á aðgangsgjöld að vegamannvirkjum, einkum jarðgöngum.
  • Fimm ára aðlögunartíma á reglum um innflutning áfengis og tóbaks fyrir ferðamenn og áhafnarmeðlimi.

Ítarefni:

Nánar um málið í minnisblaði sem utanríkisráðuneytið vann að beiðni utanríkismálanefndar, dags. 17. apríl 2026.

Nánar um skattamál á vef sem tileinkaður var aðildarviðræðunum árin 2009 - 2013