Verkfærakista

Hér er að finna skjöl sem þróuð hafa verið til að auðvelda innleiðingu jafnlaunastaðalsins. Þessi verkfæri eru sett hér fram sem dæmi um nálgun og til hægðarauka fyrir þá sem ætla sér að innleiða jafnlaunastaðalinn en ekki sem hin eina rétta leið. Jafnlaunastaðallinn kveður ekki á um hvernig uppfylla skuli þær kröfur sem þar eru settar fram heldur einungis hvaða kröfur jafnlaunakerfi þarf að uppfylla. Þessi verkfæri eru byggð á staðlinum en koma ekki í stað hans. Þegar jafnlaunastaðallinn er innleiddur er nauðsynlegt að hafa hann til hliðsjónar. Jafnlaunastaðalinn er hægt að kaupa hjá Staðlaráði Íslands.

Farið er nákvæmlega í notkun þessara skjala í vinnustofum Endurmenntunar HÍ um jafnlaunastaðalinn.

Verk-og tímaáætlun – gátlistar

Hér er að finna skapalón fyrir verkáætlun eftir þeim efnisþáttum sem settir eru fram í staðlinum: Stöðumat – Jafnlaunastefna – Umbætur – Skipulagning – Innleiðing & starfræksla – Gátun – Rýni stjórnenda

Verk- og tímaáætlun - gátlistar

Starfaflokkun – reiknilíkan

Byggir á aðferðafræði sem sett er fram sem dæmi í Viðauka B í jafnlaunastaðlinum: Stigagjöf fyrir hvert viðmið.

Fremst í líkaninu er að finna hæfniviðmið og skilgreiningar. Hægt er að breyta þeim að vild og eftir eðli starfsemi skipulagsheilda.

Einnig eru þar skilgreind skref sem þarf að fylgja til að velja viðmið og gefa þeim vægi.

Starfaflokkun - útgáfa 2.23

(uppfært 15. júní 2018)

Sjá einnig: