Mannauður
Upplýsingar sem birtar eru á þessari síðu eru á alþjóðlegum hagskýrslustaðli (GFS). Rekstrarafkoma ríkisreiknings er hins vegar birt á grunni reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila (IPSAS). Það þýðir að þær tölur sem birtast á þessari síðu og sýna helstu hagstærðir ríkissjóðs eru ekki með öllu þær sömu og birtast í ríkisreikningi vegna aðlagana sem gerðar eru á tilteknum liðum.
Gögn síðunnar eru sótt til Hagstofu Íslands, Skattsins og Fjársýslunnar, sem hefur yfirumsjón með bókhaldi og uppgjöri ríkissjóðs. Í þeim tilvikum þar sem þróun er sýnd yfir tímabil eru tölur birtar á verðlagi hvers árs og sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eða á hvern íbúa. Þegar talað er um verga landsframleiðslu er átt við verðmæti allrar vöru og þjónustu sem framleidd er í landinu á hverju ári. Tölulegar upplýsingar eru frá síðastliðnu ári nema annað sé tekið fram.
Síðan er uppfærð ársfjórðungslega.
Hvert fara peningarnir?