Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu

Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir eru úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu.

Atvinnulífið hefur lagt gríðarmikið af mörkum til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Heimsmarkmiðasjóði er ætlað að hvetja íslenskt atvinnulíf til þátttöku í uppbyggingu efnahags þróunarríkja. Með þvi að styrkja stoðir atvinnu- og viðskiptalífs í þessum löndum gefst um leið tækifæri til að efla samkeppnishæfni á framtíðarmörkuðum.

  • Verkefnin sem styrkt eru verða að fara fram í þessum löndum sem skilgreind eru þróunarríki samkvæmt skilgreiningu Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD-DAC).
  • Verkefni geta fengið styrk fyrir að hámarki 30 m.kr. á þriggja ára tímabili. Umsækjandi þarf að leggja til mótframlag sem nemur að lágmarki sömu fjárhæð og styrkurinn.
  • Verkefnin skulu vera í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og í samræmi við stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028 þar sem lögð er áhersla á skýra forgangsröðun og fagleg vinnubrögð þar sem árangur, skilvirkni og gagnsæi er sett í forgrunn.
  • Mannréttindi, jafnrétti kynjanna og umhverfis- og loftslagsmál eru bæði sértæk og þverlæg áhersluatriði sem lögð eru til grundvallar í öllum verkefnum Íslands.

Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári

  • Að þessu sinni er sérstaklega óskað eftir umsóknum um verkefni með rík umhverfis- og loftslagsáhrif, án þess þó að önnur verkefni verði útilokuð.
  • Auk þess verður lögð áhersla á stuðning við verkefni sem fela í sér tækifæri til frekari fjárfestinga annarra aðila.
  • Þá mun utanríkisráðuneytið gera kröfu til allra styrkþega um aðild að UN Global Compact á Íslandi.

Nánari upplýsingar

Umsókn skal samanstanda af eftirfarandi gögnum:

  • Útfyllt umsóknareyðublað.
  • Verkefnislýsing samkvæmt sniðmáti.
  • Greinargóð verk- og kostnaðaráætlun þar sem verkþættir og mótframlag fyrirtækis kemur skýrt fram.
  • Staðfestur ársreikningur síðasta starfsárs í samræmi við lög um ársreikninga.
  • Eigendaskrá fyrirtækis.
  • Skuldleysisvottorð frá Ríkisskattstjóra.
  • Undirrituð yfirlýsing um ríkisstyrki vegna reglna um minniháttaraðstoð (de minimis).
  • Undirrituð viljayfirlýsing frá samstarfsaðila sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.

Allar frekari upplýsingar má finna í verklagsreglum Heimsmarkmiðasjóðs atvinnulífs um þróunarsamvinnu.

  • Umsóknarfrestur er til 11. maí 2026.
  • Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á netfangið [email protected]
Listi yfir styrkt verkefni

Fyrirtæki

Fyrirtæki sem eru opinberlega skráð sem slík og eru ekki ríkisaðilar geta sótt til sjóðsins. Sérstaklega er hvatt til þess að verkefni stuðli að þverlægum markmiðum  þróunarsamvinnu Íslands um mannréttindi, sjálfbærni og jafnrétti kynjanna.  Fyrirtæki geta tekið höndum saman með félagasamtökum, háskólum og öðrum slíkum aðilum við framkvæmd verkefna.

Samstarfslönd

Áherslan er annars vegar á lágtekju- og lágmillitekjuríki á lista þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (DAC/OECD) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar.

Styrkfjárhæð

Styrkfjárhæð getur numið allt að 30 m.kr. yfir þriggja ára tímabil en umsækjandi þarf að leggja fram sama og hærra framlag en styrkfjárhæðinni nemur svo sem í formi efnis, vinnu eða ráðgjafar.

Umsókn

Senda skal umsókn til utanríkisráðuneytisins á netfangið [email protected]. Fylla þarf út umsóknareyðublöð sem er að finna hér neðar, verkefnislýsingu og verk- og kostnaðaráætlun eins og fram kemur í verklagsreglum. Velkomið er að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected].

Afgreiðsla

Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti matshóps þriggja óháðra sérfræðinga á sviði fyrirtækjareksturs og þróunarsamvinnu.

Nánar í verklagsreglum sjóðsins

Skráðu þig á póstlistann á áskriftarsíðu stjórnarráðsins