Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífs um þróunarsamvinnu

Framtíðarvelmegun þróunarlanda byggist á öflugu atvinnulífi sem skapar störf og verðmæti sem geta staðið undir þörfum samfélagsins til langs tíma. Stuðningur við sjálfbæra uppbyggingu einkageirans í þróunarríkjum er því mikilvægur og nauðsynlegur hlekkur við að ná þróunarmarkmiðum jafnt sem heimsmarkmiðum.

Heimsmarkmiðasjóður atvinnulífsins veitir styrki til íslenskra fyrirtækja vegna verkefna í þróunarríkjum gegn jöfnu eða hærra mótframlagi umsækjenda. Hlutverk sjóðsins er að hvetja einkaaðila til uppbyggingar í þróunarríkjum og draga þannig úr fátækt, stuðla að atvinnusköpun og sjálfbærum vexti í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Nánari upplýsingar

Að jafnaði er auglýst eftir umsóknum tvisvar á ári.

Umsókn skal samanstanda af eftirfarandi gögnum:

  • Útfyllt umsóknareyðublað
  • Verkefnislýsing samkvæmt sniðmáti ráðuneytisins.
  • Greinargóð verk - og kostnaðaráætlun þar sem verkþættir og mótframlag fyrirtækis kemur skýrt fram.
  • Staðfestur ársreikningur síðasta starfsárs í samræmi við lög um ársreikninga
  • Eigendaskrá fyrirtækis.
  • Skuldleysisvottorð frá Ríkisskattstjóra.
  • Undirrituð yfirlýsing um ríkisstyrki vegna reglna um minniháttaraðstoð (e. de minimis).
  • Undirrituð viljayfirlýsing frá samstarfsaðila sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.

 

Allar frekari upplýsingar má finna í verklagsreglum Heimsmarkmiðasjóðs.

Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á netfangið [email protected]

Listi yfir styrkt verkefni

Skráðu þig á póstlistann á áskriftarsíðu stjórnarráðsins

Spurt og svarað

Gerð er krafa um staðfestan ársreikning af löggiltum endurskoðenda í samræmi við 8. gr. laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu nr.121/2008 og leiðbeiningum Ríkisendurskoðunar um eftirlit með fjármunum, uppgjöri og áritun endurskoðenda í tengslum við þátttöku Íslands í sameiginlegum þróunarverkefnum. Samkvæmt Félagi löggiltra endurskoðenda um Áritanir og staðfestingar endurskoðenda getur áritun endurskoðenda verið mismunandi eftir því hvaða staðfesting frá endurskoðanda liggur að baki. Ársreikningar umsækjanda verða skoðaðir m.t.t. stærðar styrkupphæðar sem sótt er um.
Umsókn getur verið hvort sem er á íslensku eða ensku. Það er æskilegt að samstarfsaðili á vettvangi komi að mótun verkefnis og getur það auðveldað aðkomu þeirra að skrifa umsóknina á ensku.
B-hluta stofnanir, óháð því hvort þær eru á fjárlögum, geta ekki sótt um styrki úr sjóðnum. Þetta byggist á ákvæði 13. töluliðar 3. gr. laga nr. 123/2015 um opinber fjármál sem skilgreinir hugtakið 'ríkisaðilar' með svohljóðandi hætti: 'Aðilar sem fara með ríkisvald og þær stofnanir, sjóðir og fyrirtæki sem eru að hálfu eða meiri hluta í eigu ríkisins, sbr. 50. gr. Ríkisaðilar skiptast í A-, B- og C- hluta.' Reglugerð nr. 642/2018 um styrkveitingar ráðherra, sem reglur um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins sækja stoð sína í, er sett á grundvelli laga um opinber fjármál og því verður að líta til framangreindrar skilgreiningar við afmörkun á hugtakinu 'ríkisaðili'.

Framlög úr Heimsmarkmiðasjóði eru hluti af opinberri þróunaraðstoð Íslands og því þurfa verkefni sem hljóta styrk að  vera gjaldgeng samstarfslönd samkvæmt lista þróunarsamvinnunefndar OECD (DAC) yfir viðtökuríki opinberrar þróunaraðstoðar.

Samkvæmt 4. gr. reglnanna geta eingöngu skráð fyrirtæki sem ekki teljast ríkisaðilar, t.a.m. einstaklingsfyrirtæki, félög og sjálfseignarstofnanir, sótt um styrk í sjóðinn. Þessar takmarkanir eiga hins vegar ekki við samstarfsaðila sem geta t.d. verið félagasamtök, háskólar, o.s.frv.
Mælanleg þróunaráhrif geta verið margvísleg. Þau eru nátengd markmiðum verkefnisins og markhópi. Þau lýsa þeim ávinningi sem verkefnið á að skila þeim sem eiga að njóta góðs af því. Oft mælast þróunaráhrif þó á lengri tíma en þess sem verkefnið nær til. (Dæmi: Menntun stúlkna/fræðsla um getnaðarvarnir. Menntunin getur verið hluti af verkefninu og afurð þess t.d. 100 menntaðar stúlkur en þróunaráhrif þess koma ekki fram fyrr en þær eldast). Aðalmálið er að þróunaráhrif verkefnisins séu skýrt skilgreind og að hvaða leyti verkefnið hafi stuðlað að þeim.
Já, samkvæmt reglum sjóðsins geta einungis íslensk fyrirtæki sótt um styrk.
Íslenskt fyrirtæki getur sótt um styrk í samstarfi við skráð fyrirtæki á EES svæðinu, utan Íslands og fyrirtæki í þróunarríki.
Umsóknareyðublöð og verkefnislýsingar eru nú öll á ensku einmitt í þeim tilgangi að gera samstarfsaðilum á vettvangi kleift að leggja af mörkum til verkefnismótunarinnar.
Til að vera tekin til greina verða öll gögn og upplýsingar, sbr. 5. grein reglnanna og lista á umsóknareyðublaði að berast með umsókn til sjóðsins. Hins vegar, ef umsækjandi nær ekki að verða sér úti um öll gögnin sem krafist er áður en umsóknarfrestur rennur út, tekur sjóðurinn það til greina en gera þarf skýra grein fyrir ástæðum þess og tilgreina þarf hvaða gögn munu berast seinna.
Það er ekki skilyrði fyrir umsækjanda að vera aðili að UN Global Compact. Með undirskrift sinni í umsóknarskjalinu ábyrgist umsækjandi að fyrirtækið starfi skv. ábyrgum viðskiptaháttum í samræmi við alþjóðleg viðmið. Það er einnig á ábyrgð fyrirtækis að samstarfsaðili starfi samkvæmt ábyrgum viðskiptaháttum. Hins vegar er gerð sú krafa að þau fyrirtæki sem hljóta styrk og eru ekki þegar aðilar að UN Global Compact á Íslandi, gerist það við upphaf verkefnis.