Styrkt verkefni

Þróunarlönd kalla eftir auknum fjárfestingum einkageira í atvinnu- og verðmætasköpun, þar sem lausnir og sérþekking fyrirtækja geta með áhrifamiklum hætti stuðlað að framþróun innan þeirra. Þróun á heimsvísu er sú að einkageirinn kemur sífellt sterkar inn og er orðinn jafn stór opinbera geiranum í framlögum til þróunarsamvinnu. Í mörgum tilfellum horfir einkageirinn til þróunarlanda sem hratt vaxandi framtíðarmarkaða.

Öll íslensk fyrirtæki sem eru opinberlega skráð geta sótt um styrk í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Verkefni þurfa að vera unnin í samvinnu við fyrirtæki, stofnun eða stjórnvöld í samstarfslöndum Íslands. Sjá lista yfir samstarfslönd.

Fleiri en eitt íslenskt fyrirtæki geta tekið höndum saman eða átt samstarf við félagasamtök, háskóla eða aðra slíka aðila.

Fyrirtæki geta með þróunarsamstarfsverkefnum stutt við framgang heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Í samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagslega ábyrgð hefur verið hönnuð verkfærakista fyrir fyrirtæki sem vilja stuðla að heimsmarkmiðunum.

Yfir 40 fyrirtæki hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs. Flest hafa fengið stóran styrk allt að 200.000 evrur en þriðjungur til forkönnunarverkefna sem almennt eru 2 m.kr. Um helmingur þessara verkefna koma til framkvæmda í fátækustu ríkjum heims samkvæmt skilgreiningu Þróunarsamvinnunefndar OECD (Least Developed Countries). Um er að ræða fjölbreytt ráðgjafaverkefni á sviði orku- og jarðhitamála, fiskveiði og fiskveiðistjórnunar, fjármálaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, laga- og reglugerðaskrifa, matvælaframleiðslu og skapandi greina.

Nánar um fyrirtæki og verkefni hér að neðan.

Reynsla áveitunnar

Reynsla áveitunnar

Reynsla BBA

Listi yfir verkefni styrkt af Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu

Fyrirtæki

Heiti verkefnis

Upphæð (ISK)

Land

Ár

Geotropy ehf.

Uppsetning jarðvarmaknúinna kæligeymslna í Norðvesturhluta Himalayahéraðs.

30.000.000

Indland

2025

Laufið ehf.

Stuðningur við lítil og meðalstór fyrirtæki við innleiðingu sjálfbærnistaðla.

30.000.000

Kenía

2025

Laki Power ehf.

Aukin afkastageta og áreiðanleiki raforkukerfisins í Úkraínu

19.310.000

Úkraína

2025

Anna Rósa Grasalæknir ehf.

Bætt heilsa flóttakvenna með notkun jurta

16.705.480

Úganda

2024

Pólar toghlerar ehf.

Nútímavæðing fiskveiða í Kenía

26.398.800

Kenía

2024

Warm heart ehf.

Markaðssetning á malavísku kaffi

30.000.000

Malaví

2024

Hananja 2

Rephaiah verkefnið 2. hluti

29.705.200

Malaví

2024

Íslenski sjávarklasinn

Þróun sjávarklasa á Kíribati

26.548.694

Kíribati

2024

Kerecis 2

Íslenskt sáraroð til meðhöndlunar brunasára hjá börnum

24.210.400

Afganistan

2024

Vaxa technologies

Næringaraukandi fæðuverkefni í Tansaníu

30.000.000

Tansanía

2024

As we grow

Valdefling handverkskvenna í Perú

28.660.000

Perú

2023

Creditinfo Group hf.

Aukið gagnsæi fjárhagsupplýsinga til að fyrirbyggja peningaþvætti

29.060.000

Kenía, Úganda, Fílabeinsströndin, Senegal

2023

Tern Systems

Flugumsjónarkerfi fyrir minni flugvelli

29.060.000

Eþíópía

2023

Verkís

Jarðhitaverkefni á Indlandi

8.718.000

Indland

2023

Fisheries Technologies ehf.

Carice, innleiðing á TFM upplýsingakerfi

14.000.000

Karíbahafseyjar, Saint Kitts og Nevis

2023

Verkís

Geothermal Ukraine

9.156.850

Úkraína

2023

Mar Advisors

Bætt aðgengi sjávarfangs frá Víetnam að mörkuðum í Evrópu

2.000.000

Víetnam

2022

RetinaRisk

Bylting í eftirliti augnskimunar til að forða blindu á Indlandi

10.000.000

Indland

2022

Reykjavik Geothermal

Stofnun jarðhitarannsóknarstofu í Eþíópíu

27.900.000

Eþíópía

2022

Verkís

Bein jarðhitanotkun í Lake Assai, Djíbútí

4.000.000

Djíbútí

2022

Össur

Þróunaraðstoð til handa fórnarlömbum stríðasátaka í Úkraínu

27.900.000

Úkraína

2022

66 Norður og UN Women

Atvinnuþróun, valdefling flóttakvenna og hringrásarhagkerfi

26.924.000

Tyrkland/ Flóttamannamiðstöð kvenna

2022

BBA//Fjeldco og Intellecon

Fjölnýting jarðvarma í Kenía: Aukið matvælaöryggi

5.415.000

Kenía

2022

Ecoscopy

Þróunarfræ - Skalanlegar sólarorkueiningar í ræktarlandi

2.000.000

Úganda

2022

Pólar toghlerar ehf.

Hringrásarhagkerfi endurvinnsla plast úrgangs

2.000.000

Senegal

2022

Pólar toghlerar ehf. og Kaldara Group

Hringrásarhagkerfi og nútímavæðing fiskveiða í Kenía

6.000.000

Kenía

2022

Áveitan ehf.

Sjálfbært samfélag með aðgengi að vatni

29.120.000

Búrkína Fasó

2021

BBA//Fjeldco ehf.

Skrif á reglugerðum v/ endurnýjanlegra orkugjafa

6.383.000

Kómoreyjar

2021

Björn Guðmundsson,

Þróunarfræ - Örryggi í flugsamgöngum

2.000.000

Kongó

2021

GEG ehf.

Notkun jarðvarma við kæligeymslur fyrir epli

14.560.000

Indland

2021

Geymd ehf.

Nýjung hönnun og uppbygging. Snjallmannvirkja

2.000.000

Indland og Kenía

2021

Hananja ehf.

Rephaiah verkefnið

26.875.000

Malaví

2021

Intellecon ehf.

Bætt fiskveiðistjórnun í Viktoríuvatni

28.073.000

Úganda

2021

Kerecis

Sáraumbúðir til bágstaddra í Kaíró

5.896.000

Egyptaland

2021

T16 ehf.

Skapandi greinar fyrir betri atvinnutækifæri

2.000.000

Gínea Bissá

2021

Atmonia ehf.

Sjálfbær framleiðsla á nituráburði

2.000.000

Kamerún

2020

Fisheries Technologies ehf.

Carice, innleiðing á TFM upplýsingakerfi

14.360.000

St. Lúcía og Dóminíka

2020

Ocean Excellence ehf.

Kælitækni fyrir smábátaútgerðir

2.000.000

Sierra Leóne

2020

Aurora Seafood ehf.

Aukin hagsæld með nýtingu vannýttra auðlinda úr sjó

2.000.000

Gínea

2019

Creditinfo Group hf.

Aðgengi lítilla fyrirtækja að fjármálaþjónustu

23.345.000

Fílabeinsströndin og Senegal

2019

Marel hf.

Bætt gæði í vinnslu pangasius

7.000.000

Víetnam

2019

Thoregs

Skyrgerð próteinvörur og mjólkurvinnsla

5.000.000

Indland

2019