Þróunarsamvinna Íslands og Malaví
Ísland og Malaví hafa starfað saman á sviði þróunarsamvinnu frá árinu 1989. Sendiráð Íslands í Lilongwe, höfuðborg Malaví, var opnað árið 2004 en áður hafði Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) starfrækt þar umdæmisskrifstofu.
Í upphafi samstarfsins var megináherslan á þróun fiskveiða og -vinnslu við Malavívatn en hefur færst yfir á heilbrigðisþjónustu, menntun og vatns- og hreinlætismál í fiskisamfélögum við vatnið. Einnig eru mannréttindi, jafnrétti kynjanna og umhverfis- og loftslagsmál lögð til grundvallar verkefna og samþætt í fjölmörg verkefni þróunarsamvinnunnar.
Starfað er eftir stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028. Yfirmarkmið stefnunnar er útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði. Einnig er starfað eftir stefnumiðum í tvíhliða þróunarsamvinnu og landsáætlun fyrir Malaví.
Þróunarsamvinna Íslands í Malaví byggist á nánu samstarfi við héraðsyfirvöld í samstarfshéruðum Íslands hverju sinni en að auki er starfað með ýmsum stofnunum Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðabankanum og félagasamtökum, bæði innlendum og alþjóðlegum. Ísland styður einnig við verkefni Rauða krossins á Íslandi, Hjálparstarfs kirkjunnar, SOS Barnaþorpanna og Landsambands Þroskahjálpar í landinu.
Hátt í eitt hundrað sérfræðingar frá Malaví hafa stundað nám við skóla GRÓ á Íslandi. Þekkingarmiðstöð GRÓ miðar að því að efla getu og sérþekkingu einstaklinga, samtaka og stofnana í þróunarlöndum með áherslu á fjögur svið: jafnrétti, jarðhita, landgræðslu og fiskimál.
Í Malaví er alla jafna hæstu framlögum tvíhliða þróunarsamvinnu varið á ári hverju. Finna má allar upplýsingar um framlög til Malaví undanfarin ár á www.openaid.is
Héraðsþróunarverkefni í Malaví
Í Malaví er valddreift stjórnkerfi, hlutverk héraðsstjórnvalda er að veita íbúum grunnþjónustu, þ.m.t. heilbrigðisþjónustu, aðgang að hreinu vatni og grunnskólamenntun. Frá árinu 2012 hefur Ísland unnið eftir héraðsnálgun í samvinnu við héraðsyfirvöld í Mangochi-héraði. Sama ár var undirritaður samstarfssamningur við ráðuneyti sveitarstjórnarmála og héraðsstjórnvöld í Mangochi um eflingu grunnþjónustu í héraðinu.
Við framkvæmd tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands er lykiláhersla lögð á staðbundið eignarhald, þátttöku stjórnvalda í undirbúningi og framkvæmd verkefna og samræmingu við þróunaráætlanir viðkomandi ríkis, sem og fagleg vinnubrögð með áherslu á árangur í takt við alþjóðleg viðmið. Framkvæmd verkefna er í höndum héraðsyfirvalda en sendiráð Íslands í Malaví hefur reglubundið eftirlit með fjármálum og veitir tæknilegan stuðning. Héraðsþróunarverkefni eru hugsuð til lengri tíma en með þessari nálgun er meginreglum um árangursríka þróunarsamvinnu fylgt, ásamt því að hámarka nýtingu þróunarsamvinnufjár til að ná langtíma árangri. Nálgunin byggist jafnframt á forgangsröðun heimamanna, bæði á landsvísu og á sveitarstjórnarstigi og er ætlað að styrkja kunnáttu og getu héraðsyfirvalda við undirbúning og framkvæmd verkefna. Niðurstöður óháðra úttekta sýna jákvæð heildræn áhrif og að eignarhald héraðsyfirvalda og heimafólks stuðlar að sjálfbærni verkefna.
Í kjölfar góðs árangurs héraðsþróunarverkefna í Mangochi sem og jákvæðra úttekta á þeim og héraðsnálgun Íslands var ákveðið í samráði við stjórnvöld í Malaví að fjölga samstarfshéruðum Íslands í landinu og hefja samstarf við Nkhotakota-hérað árið 2022. Seinni hluta árs 2025 hófust viðræður við önnur héruð í Malaví um mögulegt samstarf í náinni framtíð.
Hér fyrir neðan má lesa nánar um héraðsþróunarverkefni Íslands í Malaví.
Héraðsþróunarverkefni Mangochi Basic Services Programme (MBSP) hófst árið 2012 þegar fyrsti áfangi þess, fram til ársins 2016, var samþykktur. Annar áfangi MBSP II hófst árið 2017 og stóð yfir til loka júní 2021. Samstarfið var framlengt til loka júní 2025. Síðasti áfangi héraðsþróunarverkefnis Íslands í Mangochi hófst í ágúst 2025 og mun standa yfir í þrjú ár. Helsti samstarfs- og framkvæmdaaðili verkefna er héraðsstjórn Mangochi-héraðs.
Mangochi er á meðal stærstu og fjölmennustu héraða Malaví en þar búa um 1,3 milljónir íbúa á 6.273 km² landsvæði.
Helstu áherslur byggðarþróunarverkefnis Íslands í Mangochi:
- uppbygging heilbrigðisinnviða og lýðheilsu með áherslu á mæðra- og ungbarnaheilsu og bætt aðgengi að heilbrigðisþjónustu í sveitum;
- uppbygging grunnskóla með áherslu á stuðning við yngsta aldursstigið;
- bætt aðgengi að hreinu vatni;
- bætt þekking á hreinlætismálum og salernisaðstöðu;
- stuðningur við atvinnutækifæri og efnahagslega valdeflingu kvenna og ungmenna;
- stuðningur við héraðsskrifstofu með áherslu á deildir fjármála, framkvæmda, útboðs- og innkaupsmála og árangurs og eftirlits.
Heilbrigðisþjónusta
Sérstök áhersla er lögð á mæðra- og ungbarnaheilsu við uppbyggingu heilbrigðismála í Mangochi, en mæðradauði er afar tíður í Malaví. Opnun nýrrar fæðingardeildar við héraðssjúkrahúsið í Mangochi-bæ árið 2019 markaði tímamót í starfsemi héraðssjúkrahússins. Á lóð fæðingardeildarinnar er einnig miðstöð ungbarna- og mæðraverndar.
Verið er að byggja umfangsmikla og fullbúna heilsugæslu og fæðingardeild í sveitarfélaginu Makanjira, sem er á afskekktu svæði í Mangochi-héraði, sem mun þjónusta um 210 þúsund íbúa. Vegna lélegra vegasamgangna hafa íbúar ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu í Mangochi-bæ á meðan á regntímanum stendur. Ráðgert er að í síðasta áfanga héraðsverkefnisins muni uppbyggingu sjúkrahússins ljúka og þjónustustig aukast.
Síðastliðinn áratug hafa íslensk stjórnvöld stutt við byggingu níu fæðingardeilda í afskekktum sveitum. Þá hafa tólf starfsmannahús verið byggð ásamt því að sett hafa verið upp vatns- og rafmagnskerfi við heilsugæslustöðvar. Sérstök áhersla er lögð á lýðheilsumál og heilsuvernd þar sem heilbrigðisfulltrúar gegna mikilvægu hlutverki í því að tryggja íbúum í dreifbýli aðgang að heilbrigðisþjónustu í héraðinu.
Heilbrigðisyfirvöld í Mangochi hlutu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur árið 2021, en valið byggðist á mælanlegum stöðlum yfirvalda um framfarir í stjórnun, umsýslu og þjónustu. Þann árangur má að miklu leyti rekja til samstarfs héraðsins við Ísland.
Árangur í heilbrigðismálum gegnum verkefnastoðina Mangochi frá 2017:
<div style="position: relative; width: 100%; height: 0px; padding: 17.28% 0px 0px; overflow: hidden; will-change: transform;"><iframe loading="lazy" src="https://e.infogram.com/eccf92e6-521f-4c3c-8a90-39548b2b6a85?src=embed&embed_type=responsive_iframe" title="2026 Mangochi - árangur heilbrigði" allowfullscreen="" allow="fullscreen" style="position: absolute; width: 100%; height: 100%; top: 0px; left: 0px; border-width: medium; border-style: none; border-color: currentcolor; border-image: none; padding: 0px; margin: 0px;"></iframe></div>
Menntun
Meira en þrjátíu þúsund börn og unglingar hafa notið góðs af heildstæðum stuðningi Íslands við tólf skóla í Mangochi þar sem unnið er að því að bæta gæði menntunar og draga úr brottfalli nemenda. Til að ná því markmiði hefur aðbúnaður í skólunum verið bættur, nýjar skólastofur byggðar og bókakostur og aðgangur að námsgögnum bættur. Einnig er lögð áhersla á bættan aðgang að salernum og fullnægjandi hreinlætisaðstöðu fyrir stúlkur á blæðingum sem og aðgang að hreinu vatni. Einnig hafa stjórnvöld stutt verkefni sem veitir skólabörnum heilnæma máltíð á skólatíma. Enn fremur er lögð áhersla á að viðhalda góðu starfsumhverfi fyrir kennara, bjóða upp á þjálfun og endurmenntun ásamt því að veita kennurum húsnæði nálægt vinnustað.
Stuðningur foreldra og samfélaga hvað varðar menntun skiptir máli. Því er lögð áhersla á upplýsingaflæði um réttindi barna til menntunar og gott samstarf við foreldra í gegnum sérstakar nefndir til dæmis foreldrafélög. Er þetta gert til þess að stuðla að því að fleiri börn geti sótt skóla. Stuðningur Íslands beinist einnig að yngsta aldursstiginu og hafa til að mynda verið byggðir leikskólar á lóðum tveggja grunnskóla.
Árangur í menntamálum í gegnum verkefnastoðina í Mangochi frá 2017:
Vatn og hreinlæti
Áhersla er lögð á valdeflingu, uppbyggingu þekkingar og stuðning við héraðsstjórnvöld og samfélög í Mangochi á sviði vatns- og hreinlætismála með það að markmiði að leiða til aukinnar vitundar fólks um hreinlæti og mikilvægi notkunar salerna og handþvottar.
Bættur aðgangur að drykkjarhæfu vatni er tryggður með uppsetningu á annað þúsund vatnspósta víðsvegar í sveitum Mangochi. Sett hafa verið upp samtals níu sólarknúin vatnskerfi við skóla og heilsugæslur í héraðinu. Hafa nú yfir 400 þúsund manns aðgang að hreinu vatni og hefur stórlega dregið úr vatnsbornum sjúkdómum og færri börn þjást af niðurgangspestum.
Árangur í vatns- og hreinlætismálum í gegnum verkefnastoðina í Mangochi frá árinu 2017:
Valdefling kvenna og ungmenna
Valdefling kvenna og ungmenna er mikilvægur þáttur í starfsemi héraðsskrifstofunnar og hafa íslensk stjórnvöld stutt við þá skrifstofu sem fer með málaflokkana. Meðal afurða þessa stuðnings eru stefnumið fyrir efnahagslega valdeflingu kvenna og málefni ungmenna, þau fyrstu sinnar tegundar í héraðinu. Einnig var sett af stað sérstakt tilraunaverkefni þar sem unnið er með 13 samvinnufélögum - sex kvennahópum og sjö ungmennahópum - sem hafa hlotið stuðning í formi tækja og tóla, auk þjálfunar til að efla framleiðslu sína, setja upp viðskiptaáætlanir, þróa virðiskeðjur sínar til að bæta markaðssetningu, þjálfun í viðeigandi frumkvöðlafræðum, auka fjármálalæsi og aðgang að fjármálaþjónustu með þjálfun og getu í að sækja aukið fjármagn. Hóparnir vinna við ýmis konar landbúnaðar- og fiskvinnslu, t.a.m. geitabúskap, tómatarækt, útgerð, maísmjölsframleiðslu og chilialdin-framleiðslu.
Þá hafa 120 nemendur frá Mangochi útskrifast úr verknámi með stuðningi frá Íslandi. Nemendurnir stunda ýmist nám í húsasmíði, bifvélavirkjun, klæðskurði, múraraiðn og rafvirkjun. Í útskriftargjöf hafa nemendurnir fengið ýmis tæki og tól eins og borvélar, verkfæri, saumavélar og hlífðarfatnað til að gera þeim auðveldara að stíga fyrstu skrefin í atvinnulífinu en oft er hár kostnaður á slíkum búnaði þröskuldur sem reynist ungmennum erfitt að yfirstíga.
Árangur í valdeflingu kvenna og ungmenna í gegnum verkefnastoðina í Mangochi:
Bætt stjórnsýsla í Mangochi
Lögð er áhersla á staðbundið eignarhald samstarfsaðila og er verkefnastoðin í Mangochi því framkvæmd af héraðsstjórninni, en ríkur stuðningur við getuuppbyggingu og bætta stjórnsýslu í héraðinu.
Frá árinu 2017 hafa íslensk stjórnvöld stutt við eflingu getu innan fjármála-, eftirlits-, innkaupa- og framkvæmdasviða héraðsins sem og á þekkingu við áætlanagerð. Hluti verkefnisins er bygging sem hýsir héraðsskrifstofurnar og voru þær framkvæmdir fjármagnaðar í sameiningu af malavískum og íslenskum stjórnvöldum.
Utanríkisráðherra hleypti formlega af stað nýju héraðsþróunarverkefni í opinberri heimsókn til Malaví í desember árið 2022. Framkvæmd héraðsþróunarverkefnisins Nkhotakota Basic Services Programme (KKBSP) hófst um mitt ár 2023.
Nkhotakota-hérað er staðsett miðsvæðis í Malaví og liggur við strendur Malavívatns. Héraðið er dreifbýlt og tiltölulega fámennt á malavískan mælikvarða en íbúar þess eru um 400.000 á 4.338 km² landsvæði.
Helstu áherslur byggðarþróunarverkefnis Íslands í Nkhotakota:
- uppbygging heilbrigðisinnviða og lýðheilsu með áherslu á mæðra- og ungbarnaheilsu og bættan aðgang að heilbrigðisþjónustu í sveitum;
- uppbygging grunnskóla með áherslu á stuðning við yngsta aldursstigið;
- bættur aðgangur að hreinu vatni;
- bætt þekking á hreinlætismálum og salernisaðstaða;
- stuðningur við héraðsskrifstofu með áherslu á deildir fjármála, framkvæmda, útboðs- og innkaupsmála og árangurs og eftirlits;
- áhersla á samþættingu eftirfarandi þátta í alla grunnþjónustu: jafnrétti kynjanna, efnahagsleg valdefling ungmenna, bætt viðnám samfélaga gegn loftslagsbreytingum og málefni fatlaðra barna.
Heilbrigðisþjónusta
Stuðningur við heilbrigðiskerfið í héraðinu er mikilvægur, ekki síst við mæðra- og ungabarnaheilsu. Byggð hefur verið ný fæðingardeild og þrjár heilsugæslur í afskekktum byggðum héraðsins ásamt því að endurbæta fæðingarstofur og heilsugæslur. Einnig hafa verið keyptir sjúkrabílar og tækjabúnaður til að bæta aðgang fólks að heilbrigðisþjónustu. Loks hefur heilbrigðisstarfsfólk og annað starfsfólk spítalans fengið þjálfun til að efla mæðra- og ungbarnaheilbrigði, veita fræðslu um kyn- og frjósemisheilbrigði og bæta skráningu í heilbrigðiskerfinu.
Menntun
Veigamesti þáttur verkefna í Nkhotakota er uppbygging grunnskóla með áherslu á stuðning við yngsta aldursstigið. Stuðningurinn mun meðal annars fela í sér byggingu á kennslustofum, salernisaðstöðu og kennarahúsum; endurnýjun námsgagna; byggingu skólaeldhúsa og bættan aðgang að skólamáltíðum. Að auki verður aðgangur að hreinu og öruggu vatni og sólarorku við skólana bættur til muna. Einnig stendur til að byggja leikskóla og að styrkja héraðsyfirvöld til að efla getu sína til að veita nemendum með sérþarfir þ.m.t. fötluðum börnum aðstoð.
Vatn og hreinlæti
Skortur á viðunandi salernis- og hreinlætisaðstöðu eykur líkur á dreifingu vatnsborinna smitsjúkdóma. Því er bættur aðgangur að hreinu vatni mikilvægur þáttur í stuðningi við héraðið. Um er að ræða fjögur samfélög sem liggja að Malavívatni til að bæta salernis- og hreinlætisaðstöðu fólks, bæði í nærumhverfi sem og við félagslega innviði, t.d. skóla, heilsugæslustöðvar, fiskvinnslur og markaði.
Umhverfismál
Bætt stjórnsýsla í Nkhotakota
Til að stuðla að aukinni færni héraðsyfirvalda er héraðsskrifstofan styrkt til að bæta fjármálaumsýslu og gagnaöflun, vinnslu útboðsferla og eftirfylgni með byggingarframkvæmdum. Sérstakur stuðningur er við stefnumótun á sviði jafnréttismála, umhverfismála og í tengslum við málefni ungmenna og barna með sérþarfir.
Aðrir samstarfsaðilar
Öflugt samstarf var við Mannréttindastofnun Malaví á árabilinu 2022-2025, með það að markmiði að auka þekkingu almennings á kynbundinni mismunun og rannsaka mannréttindabrot á landsvísu er varða kynbundna mismunun ásamt því að efla getu og þekkingu opinberra stofnana og einkarekinna stofnana á málefnum tengdum kynbundinni mismunun; og styrkja innleiðingu á jafnréttislöggjöf stjórnvalda (e. Gender Equality Act).
Stofnunin studdi við sýningar myndarinnar The Day Iceland Stood Still sem sýnd var í öllum heldstu háskólum landsins haustið 2025 í tilefni 50 ára afmælis kvennafrídagsins.
Félagasamtökin Go Fund A Girl Child eru feminísk grasrótarsamtök sem voru stofnuð og eru rekin af hópi ungra stúlkna og kvenna. Markmið samtakanna er að skapa umhverfi þar sem ungar stúlkur og konur í dreifbýli og á jaðarsvæðum borga hljóta stuðning og eru valdefldar, sem stuðlar að félagslegri og efnahagslegri þróun í Malaví.
Í maí 2025 var gerður samningur til tveggja ára um samstarfsverkefni sem ber heitið Empower2Transform og byggist á líkani um „örugg rými' eða safe space líkani. Er því ætlað að styðja við valdeflingu stúlkna og ungra kvenna sem eru í viðkvæmri stöðu, með áherslu á kyn- og frósemisréttindi, mannréttindi, jafnrétti kynjanna, jafningjastýrða þátttöku og efnahagslega valdeflingu.
IPAS, alþjóðleg félagasamtök sem styðja við kyn- og frjósemisréttindi, hafa með stuðningi frá Íslandi þjálfað heilbrigðisstarfsfólk í Mangochi og Nkhotakota-héröðum til að veita örugga og heilnæma þungunarrofsþjónustu. Framlag Íslands veitir heilsugæslum viðeigandi tækjabúnað og eykur vitund í nærsamfélögum um að hægt sé að nálgast þessa oft lífsbjargandi heilbrigðisþjónustu í heimabyggð og á héraðssjúkrahúsinu með öruggum hætti.
Lagarammi Malaví heimilar eingöngu þungunarrof ef meðganga ógnar lífi verðandi móður. Þetta leiðir til þess að fjöldi þungunarrofa eru framkvæmd við aðstæður þar sem lífshættulegum aðferðum er beitt, oft af ófaglærðu fólki. Áætlað er að um 18% tilfella mæðradauða í Malaví megi rekja til þungunarrofa sem framkvæmd eru við lífshættulegar aðstæður og er meirihluti þeirra stúlkur á aldrinum 14 til 23 ára.
Rannsókn sem IPAS gerði árið 2022, þar sem tekinn var saman heildarfjöldi kvenna og stúlkna í Malaví sem þurftu á bráðaaðgerð að halda vegna fylgikvilla eftir þungunarrof sem framkvæmd voru við hættulegar aðstæður, leiddi í ljós að 28.371 kona og stúlka sóttu slíka þjónustu það árið, eða 77 á hverjum degi að meðaltali. Áætlað er að 2/3 sjúkrapláss á kvensjúkdómadeildum landsins séu nýtt undir konur sem glíma við afleiðingar þungunarrofs sem framkvæmd voru við hættulegar aðstæður.
Knattspyrnuverkefnið Full Circle Equity er samstarfsverkefni með Ascent Soccer Academy sem miðar að því að efla jafnrétti og veita stúlkum tækifæri í gegnum knattspyrnu og styðja við menntun þeirra. Gefst leikmönnum meðal annars tækifæri til þess að taka þátt í knattspyrnumótinu Rey Cup á Íslandi. Samstarfsverkefnið hófst í september 2025 og mun standa yfir í tvö ár. Markmið þess er að valdefla nýja kynslóð kvenleiðtoga í Malaví með því að auka aðgang að skipulgöðu knattspyrnustarfi og efla fjölbreytt tækifæri til hæfileikaþróunar, fræðslu og vaxtar.
Mannréttinda- og Jafnréttisverkefni
Gender and Justice Unit[Go Fund a Girl Child](https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Utanrikismal/Throunarsamvinna/Tvihlida/Go Fund A Girl_summary.pdf)[IPAS](https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Utanrikismal/Throunarsamvinna/Tvihlida/Ipas Strengthening provision of CAC_summary.pdf)Brother 2 BrotherMannréttindastofnun Malaví
Starf með áherslustofnunum Íslands í Malaví
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme - WFP)
Samstarf hófst við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme, WFP) í Malaví um skólamáltíðir árið 212. Með því varð Ísland eitt fyrstu framlagsríkja heims til þess að fjármagna verkefni WFP um heimaræktaðar skólamáltíðir.
Á árabilinu 2022-2025 hafa um 13 þúsund börn í tíu skólum í Mangochi-héraði notið góðs af verkefninu ásamt um 1,500 smábænda. Markmið skólamáltíðarverkefnisins er að tryggja að skólabörn hafi aðgang að næringarríku og fjölbreyttu fæði. Máltíðirnar eru hvatning til barna að sækja í skóla ásamt því að ataðgóð næring bætir námsárangur. Á sama tíma er stuðlað að betri næringu, auknu fæðuöryggi, eflingu á landbúnaðarframleiðslu og nýjum viðskiptatækifærum fyrir smábændur.
Annað verkefni hófst í byrjun 2025 í Nkhotakota-héraði. Markmið þess er að veita tíu þúsund börnum í tíu skólum næringarríkar skólamáltíðir auk þess að styðja við 1,200 smábændur á svæðinu.
Heimaræktaðar skólamáltíðir eru unnar úr árstíðabundinni uppskeru og tryggja bændum aðgang að öruggum markaði fyrir vörur sínar sem eykur fjölbreytni í ræktun og skapar atvinnuöryggi. WFP veitir bændum einnig þjálfun og styður við nýsköpun í framleiðsluaðferðum.
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (United Nations Population Fund– UNFPA)
Árið 2023 hófst þriggja ára samstarfsverkefni við UNFPA og héraðsyfirvöld í Nkhotakota-héraði. Verkefnið beinist að því að auka vitund og þekkingu í samfélaginu um fæðingarfistil, efla hæfni heilbrigðisstarfsfólks til að framkvæma skurðaðgerðir og koma á fót sérhæfðri skurðstofu í héraðssjúkrahúsinu til að framkvæma aðgerðir vegna fæðingarfistils. Verkefnið byggist á fyrra samstarfsverkefni Íslands og UNFPA frá árunum 2020-2022 í Mangochi-héraði.
Fæðingarfistill er alvarlegt og viðvarandi vandamál í fátækustu ríkjum heims þar sem heilbrigðisþjónusta er bágborin og algengt er að barnungar stúlkur eignis börn. Orsök fæðingarfistils er rifa í fæðingavegi, t.d. milli ristils og legganga sem ekki er meðhöndluð.
Beitt er heildrænni nálgun svo takast megi á við orsakir og afleiðingar fæðingarfistils. Þannig fá konur sem þjást af fæðingarfistli aðgang að heilbrigðisþjónustu, þar með töldum leiðréttandi skurðaðgerðum, sem og þjálfun og styrk til þess að veita öðrum konum jafningjafræðslu sem dregur úr fordómum gagnvart konum sem þjást hafa af fæðingarfistli.
Alþjóðabankinn (The World Bank Group)
Ísland varð í janúar 2023 stofnaðili að nýjum sjóð Alþjóðabankans í Malaví sem hefur það markmið að bæta félagslega vernd þeirra allra fátækustu í Malaví. Sjóðurinn styður m.a. við tvö stærstu öryggisnet malavískra stjórnvalda sem stuðla að bættum lífsskilyrðum þeirra sem búa við sárafátækt með mánaðarlegum stuðningsgreiðslum og sköpun grænna starfa sem miða að því að auka viðnámsþrótt samfélaga gegn áhrifum loftslagsbreytinga. Með launaðri vinnu eykst fæðuöryggi þátttakenda, stuðlað er að samfélagslegum stöðugleika og eftir standa sterkir innviðir t.d. stíflur og varnargarðar.
Stofnun sjóðsins markaði vatnaskil í þróunarsamvinnu í Malaví og hann skapar mikilvægan vettvang til stefnumótunar og samhæfingar milli framlagsríkja og stjórnvalda í landinu. Í lok árs 2023 tilkynnti Ísland um viðbótarframlag í sjóðinn eyrnamerkt grænum störfum. Þátttöku Íslands í verkefninu lauk við loks árs 2025.
Þróunaráætlun Sameinuðu Þjóðanna (United Nations Development Program - UNDP)
Ísland hefur ásamt Noregi fjármagnað mannréttindaverkefni sem framkvæmt er af UNDP. Verkefnið hófst árið 2023 og stendur til ársloka 2026. Megináherslur verkefnisins fela í sér að styðja við lykilmannréttindastofnanir í Malaví ásamt því að styrkja félagasamtök sem vinna sérstaklega að mannréttindum jaðarhópa. Felst það meðal annars í því að efla starf og sjálfstæði stofnana í Malaví til að framfylgja alþjóðlegum mannréttindasáttmálum, ásamt því að efla getu og starf félagasamtaka til að auka vitund almennings um eigin réttindi, með áherslu á málefni jaðarsettra hópa í Malaví.
Nýr fæðingarspítali rís í Mangochi
Efnahagsleg valdefling ungmenna
Árangur stuðnings við menntun í Mangochi
Bætt aðgengi að vatni og hreinlæti
Monkey Bay Community Hospital
Um Malaví
Malaví er landlukt land í suðausturhluta Afríku og á landamæri að Mósambík, Sambíu og Tansaníu. Höfuðborg landsins er Lilongwe og er áætlaður íbúafjöldi Malaví um 21 milljón, sem gerir Malaví að einu þéttbýlasta ríki í Afríku. Malavíska þjóðin er mjög ung, meira en helmingur af íbúum Malaví er yngri en 18 ára. Malavívatn nær yfir fimmtung landsins en samtals er flatarmál Malaví aðeins stærra en Ísland, eða um 120 þúsund ferkílómetrar. Malaví er meðal fátækustu ríkja heims, en það er í 172. sæti af 193 ríkjum á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna (Human Development Index). Fjölbreytt náttúra einkennir landið, með hásléttum og gróðursælu láglendi. Malaví er frjósamt og mikill meirihluti landsmanna lifir af landbúnaði. Tóbak, te og bómull er ræktað til til útflutnings, en maís, kassavarót og hrísgrjón eru helstu matvælategundirnar sem ræktaðar eru til neyslu innanlands.