11. september 2024Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Samstaða um auknar aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum
Stjórnvöld hafa ákveðið að fjölga aðgerðum vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum og auka fjármagn til aðgerðanna. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í gær. Alvarlegt ofbeldi sem hefur átt sér stað á síðustu misserum undirstrikar þörfina á samstilltu átaki til að bregðast við þróuninni af festu.