20. mars 2024Atvinnuvegaráðuneytið
Ísland aftur orðið meðlimur Laxaverndunarstofnunarinnar (NASCO)
Samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, sem tekin var í mars árið 2023, er Ísland aftur orðið meðlimur Laxaverndunarstofnunarinnar, NASCO. Önnur aðildarríki eru Bandaríkin, Bretland, Danmörk (fyrir Færeyjar og Grænland), Evrópusambandið, Kanada, Noregur og Rússland. Að auki eiga yfir 20 hagsmunasamtök áheyrnaraðild að NASCO.