07. nóvember 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Fyrsta aðgerðaáætlun Íslands um gervigreind kynnt
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, kynnti í dag fyrstu aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda um gervigreind til ársins 2026. Þar eru tíundaðar þær aðgerðir sem stuðla munu að því að Ísland, í krafti smæðar sinnar, verði leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og skapar tækifæri, velmegun og framfarir fyrir alla landsmenn.