24. febrúar 2021Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Viljayfirlýsing um kaup ríkisins á hlutum orkufyrirtækja í Landsneti hf.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, hafa fyrir hönd ríkissjóðs undirritað viljayfirlýsingu við orkufyrirtækin Landsvirkjun, RARIK ohf., Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubú Vestfjarða, sem eigendur alls hlutafjár í Landsneti hf. um að ganga til viðræðna um kaup ríkisins á hlutum félaganna í Landsneti hf.