27. apríl 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Viðurkenningar veittar fyrir umhverfismál
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, veitti Íslandsbanka í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Foldaskóla, Öldutúnsskóla og Húsaskóla útnefndir Varðliðar umhverfisins.