05. janúar 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Fréttaannáll háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis 2022
Árið var viðburðaríkt í starfsemi nýs ráðuneytis en hlutverk þess er að leysa úr læðingi þá krafta sem myndast við samþættingu háskóla, vísinda, rannsókna, iðnaðar, upplýsingasamfélags, hugverka, fjarskipta, netöryggis og nýsköpunar. Þar með skapast grundvöllur fyrir markvissari stefnumótun og stjórnsýslu á þessum sviðum með aukinn vöxt, verðmætasköpun og velsæld að markmiði.