09. nóvember 2023Mennta- og barnamálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Íslensku menntaverðlaunin 2023
Íslensku menntaverðlaunin 2023 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum; fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.