28. apríl 2021Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Ráðherrar heimsækja Carbfix á Hellisheiði
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra heimsóttu Carbfix á Hellisheiði í dag. Ráðherrarnir fengu kynningu á starfsemi fyrirtækisins og Carbfix tækninni sem byggir á íslensku hugviti sem bindur koldíoxíð varanlega í bergi á innan við tveimur árum.