07. feb. 2025Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Vitundarvakningin Meinlaust komin í loftið
Norrænni vitundarvakningu undir yfirskriftinni Meinlaust hefur verið hleypt af stokkunum. Markmið vitundarvakningarinnar er að auka vitund almennings gagnvart öráreiti í garð jaðarhópa eins og kvenna, fólks með fötlun og fólks af erlendum uppruna. Öráreiti er hugtak yfir hversdagslegar athafnir, athugasemdir eða umhverfisþætti sem eru til þess fallin að niðurlægja fólk í jaðarsettum hópum. Hvert áreiti fyrir sig er ef til vill ekki stórvægilegt en þegar fólk í jaðarsettum hópum finnur fyrir slíku reglulega, getur áreitið valdið vanlíðan hjá viðkomandi manneskju og stuðlað að áþreifanlegri tilfinningu hennar fyrir jaðarsetningu í samfélaginu.