Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál er starfrækt á grundvelli V. kafla upplýsingalaga nr. 140/2012 til að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang almennings að upplýsingum hjá stjórnvöldum. Nefndin er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem skipað er til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga. Valdsvið nefndarinnar nær til allrar stjórnsýslu hins opinbera án tillits til á hvaða stjórnsýslustigi ákvörðun er tekin. Aðili þarf því ekki að tæma aðrar kæruleiðir innan stjórnsýslunnar áður en til hennar er leitað. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður ekki skotið annað innan stjórnsýslunnar. Þeir hafa því jafnframt fordæmisgildi fyrir önnur stjórnvöld og stuðla þannig að auknu samræmi í framkvæmd upplýsingalaganna.

Sjá nánar um kæruheimild og verklagsreglur nefndarinnar.

Skipan úrskurðarnefndar

Samkvæmt 21. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 skipar forsætisráðherra þrjá menn í úrskurðarnefnd um upplýsingamál til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara. Tveir nefndarmenn og varamenn þeirra skulu uppfylla starfsgengisskilyrði héraðsdómara. Skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar en hinn varaformaður. Nefndarmenn mega ekki vera fastráðnir starfsmenn í Stjórnarráði Íslands. Sjá skipan úrskurðarnefndar.

Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum og óháð öðrum stjórnvöldum. Nefndin nýtur þó ritara og skrifstofuþjónustu úr forsætisráðuneytinu og má beina kærum til nefndarinnar á netfangið [email protected]. Einnig er unnt að senda kæru til nefndarinnar með því að fylla út rafrænt eyðublað á vef Stjórnarráðsins, mínar síður (sjá leiðbeiningar um notkun á mínum síðum).

Ritari nefndarinnar er Egill Pétursson.

Hér fyrir neðan eru allir úrskurðir nefndarinnar. Á annarri síðu er hægt að nota fullkomnari leit sem tekur t.d. tillit til beygingar orða og þar er einnig hægt að leita innan ákveðins árs.

 Sýni 651-700 af 1406 niðurstöðum
Ríkisútvarpið kærði ákvörðun Samgöngustofu um synjun beiðni um aðgang að upplýsingum um hergagnaflutninga á tilteknu tímabili. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að umbeðnar upplýsingar væru undirorpnar sérstakri þagnarskyldu samkvæmt lögum um Samgöngustofu og staðfesti hina kærðu ákvörðun.
Deilt var um synjun Orkustofnunar á beiðni Ungra umhverfissinna um aðgang að gögnum sem tengjast olíuleit á Drekasvæðinu. Stofnunin afmarkaði beiðnina við gögn um olíuleit tveggja fyrirtækja en vísaði til þess að upplýsingarnar væru undanþegnar upplýsingarétti almenning samkvæmt 26. gr. a laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolefnis. Úrskurðarnefndin túlkaði ákvæðið þannig að Orkustofnun væri heimilt að synja um aðgang að upplýsingum sem leyfishafar rannsóknar- og vinnsluleyfis afla og láta Orkustofnun í té á gildistíma leyfisins. Ákvörðun stofnunarinnar var því staðfest varðandi tiltekið fyrirtæki. Um annað fyrirtæki taldi nefndin að 9. gr. upplýsingalaga, sbr. 1. tl. 1. mgr. 6. gr. laga um upplýsingarétt um umhverfismál, kæmi í veg fyrir aðgang almennings, en í því tilviki var leyfið ekki lengur í gildi. 
Deilt var um ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja kæranda um aðgang að minnisblaði borgarlögmanns sem varðaði Hverfisgötu 41. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir efni minnisblaðsins og komst að þeirri niðurstöðu að það uppfyllti skilyrði upplýsingalaga til að teljast vinnugagn. Ákvörðun borgarinnar var því staðfest.
Kærð var ákvörðun embættis ríkislögreglustjóra um synjun beiðni um aðgang að upplýsingum um mannshvörf. Ákvörðunin byggðist fyrst og fremst á því að um væri að ræða upplýsingar um einkamálefni einstaklinga, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að af gögnum málsins mætti ráða að þessi röksemd gæti ekki átt við um öll gögnin sem kærandi krafðist aðgangs að. Embættið hefði því ekki gert grein fyrir því hvort unnt væri að veita kæranda aðgang að þeim að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Hin kærða ákvörðun var því felld úr gildi og lagt fyrir embættið að taka beiðnina til nýrrar meðferðar.
Deilt var um ákvörðun Ríkisúvarpsins um að synja um aðgang að upplýsingum um samkomulag félagsins um greiðslu bóta við einstakling sem hafði höfðað meiðyrðamál í tilefni af fréttaflutningi þess. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál komst að þeirri niðurstöðu að upplýsingaréttur almennings næði til skjalsins að undanskildum litlum hluta sem hún taldi fela í sér upplýsingar um einkamálefni sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færi á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga.
Ríkisútvarpið ohf. kærði ákvörðun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um að synja beiðni um aðgang að gögnum í máli sem varðaði aðbúnað og meðferð dýra á tilteknu býli. Úrskurðarnefndin tók fram að með hliðsjón af 9. gr. upplýsingalaga þyrfti að vega hagsmuni þeirra einstaklinga sem gögnin varða gegn hagsmunum almennings af því að þau yrðu birt opinberlega. Komist var að þeirri niðurstöðu að fyrrnefndu hagsmunirnir vægju þyngra á metunum og ákvörðun ráðuneytisins um synjun beiðninnar staðfest.
Kærð var synjun Lindarhvols ehf. á beiðni kæranda um aðgang að gögnum um söluferli félagsins á eignarhluta og tengdum kröfum í Klakka ehf. Kærandi kvaðst hafa tekið þátt í söluferlinu og byggði beiðni sína á III. kafla upplýsingalaga. Lindarhvoll ehf. veitti kæranda aðgang að hluta en um önnur gögn var ýmist vísað til þess að þau væru vinnugögn, hefðu að geyma upplýsingar um einkamálefni sem leynt skyldu fara eða fælu í sér bréfaskipti við sérfróða aðila í tengslum við dómsmál. Úrskurðarnefndin fór yfir umbeðin gögn með hliðsjón af þessum sjónarmiðum og komst að þeirri niðurstöðu að kærandi ætti sem þátttakandi í söluferlinu ríkan rétt til aðgangs að umbeðnum gögnum. Hin kærða ákvörðun var því felld úr gildi og lagt fyrir Lindarhvol ehf. að veita kæranda aðgang að þeim.
Kærð var ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytis um að synja beiðni um aðgang að gögnum um athugasemdir sem gerðar höfðu verið við söluferli Lindarhvols ehf. á eignarhluta og tengdum kröfum Klakka ehf. Synjunin byggðist á því að um væri að ræða upplýsingar um einkamálefni einstaklinga og fyrirtækja. Úrskurðarnefndin tók fram að kærandi hefði sem þátttakandi í söluferlinu veigamikla hagsmuni af því að kynna sér upplýsingar um það. Hins vegar bæri að vega hagsmuni kæranda gegn hagsmunum þeirra aðila sem getið er í gögnunum af því að þau fari leynt. Það var niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að hagsmunir kæranda vægju þyngra á metunum og var hin kærða ákvörðun felld úr gildi og lagt fyrir ráðuneytið að veita honum aðgang að umbeðnum gögnum.
Deilt var um rétt foreldris til aðgangs að samræmdum könnunarprófum og úrlausnum barns í vörslum Menntamálastofnunar. Af hálfu stofnunarinnar kom fram að hún teldi 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga um takmarkanir á rétti almennings til aðgangs að gögnum um fyrirhugaðar ráðstafanir eða próf eiga við um umbeðin gögn. Úrskurðarnefndin rakti ákvæði laga og reglna um próf í grunnskólum og komst að þeirri niðurstöðu að engin þeirra kæmi í veg fyrir aðgang kæranda. Var hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir Menntamálastofnun að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.

Deilt var um rétt foreldris til aðgangs að samræmdum könnunarprófum og úrlausnum barns í vörslum Menntamálastofnunar. Af hálfu stofnunarinnar kom fram að hún teldi 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga um takmarkanir á rétti almennings til aðgangs að gögnum um fyrirhugaðar ráðstafanir eða próf eiga við um umbeðin gögn. Úrskurðarnefndin rakti ákvæði laga og reglna um próf í grunnskólum og komst að þeirri niðurstöðu að engin þeirra kæmi í veg fyrir aðgang kæranda. Var hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir Menntamálastofnun að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.

Deilt var um rétt foreldris til aðgangs að samræmdum könnunarprófum og úrlausnum barns í vörslum Menntamálastofnunar. Af hálfu stofnunarinnar kom fram að hún teldi 5. tölul. 10. gr. upplýsingalaga um takmarkanir á rétti almennings til aðgangs að gögnum um fyrirhugaðar ráðstafanir eða próf eiga við um umbeðin gögn. Úrskurðarnefndin rakti ákvæði laga og reglna um próf í grunnskólum og komst að þeirri niðurstöðu að engin þeirra kæmi í veg fyrir aðgang kæranda. Var hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir Menntamálastofnun að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum.

Kærð var meðferð Umhverfisstofnunar á beiðni um aðgang að gögnum um samning við Landsnet um eftirlit vegna framkvæmda við Þeistareykjalínu 1 og Kröfulínu 4. Af hálfu Umhverfisstofnunar kom fram að kæranda hefði verið veittur aðgangur að þeim gögnum sem vörðuðu málið í vörslum stofnunarinnar. Þar sem réttur til aðgangs að gögnum nær eingöngu til fyrirliggjandi gagna var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Siðmennt kærði ákvörðun Þjóðskrár Íslands um synjun beiðni félagsins um aðgang að netföngum allra skráðra félagsmanna sinna. Ákvörðun Þjóðskrár byggði á því að um væri að ræða persónuupplýsingar í skilningi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 77/2000. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að í þeim lögum væri sérstaklega tekið fram að þau takmarki ekki rétt til aðgangs að gögnum samkvæmt upplýsingalögum og stjórnsýslulögum. Var hin kærða ákvörðun því felld úr gildi og lagt fyrir Þjóðskrá að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar.
Landspítali-Háskólasjúkrahús fór þess á leit að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tæki upp að nýju mál sem lyktaði með úrskurði nr. 607/2016 frá 18. janúar 2016. Í úrskurði nefndarinnar kom fram að samkvæmt 2. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga verði beiðni um endurupptöku ekki tekin til greina eftir að þrír mánuðir eru liðnir frá því aðila var tilkynnt um ákvörðun, nema að fengnu samþykki frá öðrum aðilum málsins. Þá verði mál ekki tekið upp ef ár er liðið nema veigamiklar ástæður mæli með því. Þar sem beiðnin barst tíu mánuðum eftir uppkvaðningu og samþykki gagnaðila fyrir endurupptöku lá ekki fyrr var henni hafnað.
Kærð var töf sveitarfélags á afgreiðslu beiðni kæranda um aðgang að gögnum um landamerkjadeilu. Í svari kærða kom m.a. fram að engin formleg gögn væru til, enda hefði sveitarfélaginu aðeins borist afrit af gögnum dómsmáls sem eigandi lóðanna. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar kom fram að þessari aðstöðu verði ekki jafnað til þess að engin gögn liggi fyrir um deiluna. Var því lagt fyrir sveitarfélagið að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar.
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum í vörslum Úrvinnslusjóðs um félagsmenn RR-skila, en kærandi kvaðst hafa í hyggju að krefja þá um endurgreiðslu kostnaðar. Upplýsingarnar var að finna í töflureiknisskjali sem hafði að geyma rúmlega 93.000 færslur. Úrskurðarnefndin taldi ekki unnt við þessar aðstæður að útiloka að það geti skaðað samkeppnis- eða viðskiptahagsmuni þeirra lögaðila sem skjalið fjallað um að veita aðgang að því. Þá hefði skjalið ekki að geyma upplýsingar um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Var því fallist á það með Úrvinnslusjóði að skjalið hefði að geyma upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni lögaðilanna og synjun beiðni kæranda staðfest. Beiðninni var hins vegar vísað til nýrrar meðferðar hvað varðar aðgang að félagatali RR-skila, þar sem Úrvinnslusjóður hafði ekki afgreitt hana að því leyti.
Blaðamaður óskaði aðgangs að fundargerðum Stjórnstöðvar ferðamála úr vörslum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Í fyrri úrskurði úrskurðarnefndarinnar var ákvörðun ráðuneytisins um synjun beiðninnar felld úr gildi og lagt fyrir það að taka hana til nýrrar meðferðar. Ráðuneytið synjaði beiðninni að nýju á þeirri forsendu að fundargerðirnar teldust til vinnugagna. Úrskurðarnefndin fór efnislega yfir fundargerðirnar og komst að þeirri niðurstöðu að hluti þeirra gæti fallið undir vinnugagnahugtak upplýsingalaga. Hins vegar væri þar einnig að finna almennar umræður um stöðu ferðamála á Íslandi, endanlegar ákvarðanir um afgreiðslu mála hjá Stjórnstöðinni og upplýsingar um atvik mála sem ekki koma annars staðar fram. Þessar upplýsingar gætu ekki talist til vinnugagna. Úrskurðarnefndin lagði því fyrir ráðuneytið að veita kæranda aðgang að hluta fundargerðanna.
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um það hversu mörgum grísum var slátrað á tilteknu svínabúi árið 2016 úr vörslum Matvælastofnunar, sem synjaði beiðni á þeim grundvelli að um væri að ræða upplýsingar um mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækis í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin tók fram að ákvæðið væri undantekning frá meginreglu um upplýsingarétt almennings. Með hliðsjón af því að ýmsar upplýsingar um stærð búsins eru aðgengilegar almenningi og þeirri staðreynd að fyrirtækið rekur önnur svínabú taldi nefndin umbeðnar upplýsingar ekki lúta að mikilvægum fjárhags- eða viðskiptahagsmunum þess í skilningi 9. gr. upplýsingalaga.
Kærandi kærði ákvörðun Seðlabanka Íslands og fjármála- og efnahagsráðuneytisins um synjun beiðni um gögn um fjárfestingarleið bankans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði kærunni frá gagnvart ráðuneytinu þar sem umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi hjá því í skilningi 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga. Þá var kærufrestur 1. mgr. 22. gr. laganna talinn vera liðinn gagnvart Seðlabanka Íslands en kæranda bent á að honum væri fært að leita til bankans að nýju.
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að upplýsingum um kröfur til öruggs undirskriftarbúnaðar fyrir rafrænar undirskriftir, sem eru í vörslum Neytendastofu á grundvelli eftirlitshlutverks hennar. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að upplýsingarnar féllu undir sérstakt þagnarskylduákvæði 4. mgr. 20. gr. laga nr. 28/2001 og staðfesti hina kærðu ákvörðun.
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að starfslokasamningi Flóahrepps við fyrrverandi skólastjóra Flóaskóla. Úrskurðarnefndin tók fram að af gögnum málsins mætti ráða að skólastjórinn samþykkti birtingu samningsins fyrir sitt leyti. Ekki yrði því séð að nokkrar takmarkanir ættu við um rétt kæranda til aðgangs að honum.
Kærandi óskaði aðgangs að gögnum sakamáls hjá embætti héraðssaksóknara. Úrskurðarnefndin tók fram að samkvæmt 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga gildi lögin ekki um rannsókn sakamála eða saksókn. Þar sem beiðni kæranda lyti skýrlega að að slíkum gögnum var kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Isavia ohf. krafðist frestunar réttaráhrifa úrskurðar úrskurðarnefndarinnar nr. 709/2017 á meðan mál yrði borið undir dómstóla með vísan til 24. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin fór yfir röksemdir Isavia fyrir kröfunni og komst að þeirri niðurstöðu að skilyrði ákvæðisins væru ekki uppfyllt. Kröfunni var því hafnað.
Óskað var eftir því að úrskurðarnefndin endurupptæki mál sem lyktaði með úrskurði nr. 696/2017. Í úrskurðinum komst úrskurðarnefndin að þeirri niðurstöðu að vísa bæri kæru kæranda frá á þeim grundvelli að umbeðin gögn væru ekki fyrirliggjandi hjá Ríkisútvarpinu ohf. Úrskurðarnefndin tók fram að með úrskurðinum hafi ekki verið tekin afstaða til þess hvort staðið hafi verið með réttum hætti að skráningu og varðveislu gagnanna hjá RÚV, heldur kæmi afhending þeirra ekki til greina á grundvelli upplýsingalaga. Beiðni um endurupptöku málsins var því hafnað.
Kærð var ákvörðun Háskóla Íslands um að synja beiðni um aðgang að úrskurðum siðanefndar skólans þar sem fjallað var um 4. gr. starfsreglna siðanefndarinnar. Ákvörðun skólans var byggð á því að ákvarðanirnar hefðu að geyma upplýsingar um málefni starfsmanna skólans í skilningi 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga og einkamálefni sem sanngjarnt og eðlilegt væri að færu leynt skv. 9. gr. laganna. Úrskurðarnefndin taldi ekki  unnt að fallast á það með Háskóla Íslands að umfjöllun siðanefndar skólans í málunum teldist gögn um starfssambandið að öðru leyti í skilningi fyrrnefnda ákvæðisins. Nefndin fór hins vegar yfir ákvarðanirnar með hliðsjón af ákvæði 9. gr. upplýsingalaga og lagði fyrir skólann að veita kæranda aðgang að þeim að hluta.
Úrskurðarnefndin endurupptók mál sem varðaði rétt kæranda til aðgangs að samantekt um öryggi fjarskipta sem fyrrverandi forsætisráðherra lét taka saman fyrir ríkisstjórnina. Eftir að nefndinni bárust nánari skýringar og gögn frá forsætisráðuneytinu taldi hún fært að leggja til grundvallar að umbeðin gögn hefðu sérstaklega verið tekin saman fyrir ráðherrafund í skilningi 1. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Ákvörðun forsætisráðuneytis um synjun beiðni kæranda var því staðfest.
Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að vikulegum fréttapistlum forstjóra Lyfjastofnunar á tilteknu tímabili. Stofnunin synjaði kæranda m.a. um aðgang á þeirri forsendu að um væri að ræða gagnagrunn, en upplýsingaréttur almennings samkvæmt upplýsingalögum næði almennt ekki til slíkra gagna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að þetta hafi gilt í tíð eldri upplýsingalaga en samkvæmt núgildandi lögum nr. 140/2012 þurfi upplýsingar einungis að vera fyrirliggjandi, hvort sem þær tilheyri tilteknu máli eða ekki. Úrskurðarnefndin taldi fréttapistlana fyrirliggjandi hjá stofnuninni í skilningi laganna. Þá taldi úrskurðarnefndin Lyfjastofnun ekki hafa gert nægjanlega grein fyrir því hvernig aðrar takmarkanir á upplýsingarétti almennings gætu átt við um fréttapistlana. Hin kærða ákvörðun var því felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka beiðni kæranda til nýrrar meðferðar.
Kærandi kærði afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar á beiðni um aðgang að ráðningarsamningi bæjarins við meindýraeyði. Í skýringum bæjarins kom fram að bærinn hefði ekki gert slíkan samning, heldur væri til kallaður sjálfstætt starfandi meindýraeyðir eftir þörfum. Þar sem beiðnin laut að gögnum sem ekki eru fyrirliggjandi hjá Vestmannaeyjabæ var kærunni vísað frá.
Kærð var afgreiðsla Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um gögn varðandi samþykkt og útgáfu framkvæmdaleyfis. Af hálfu Reykjavíkurborgar kom fram að kærandi hefði þegar fengið aðgang að öllum fyrirliggjandi gögnum sem tengdust málinu. Kærunni var því vísað frá.
Kaffitár ehf. kærði ákvörðun Isavia ohf. um synjun beiðni um aðgang að gögnum sem tengjast samkeppni um leigurými á Keflavíkurflugvelli í mars 2014 og ekki voru til umfjöllunar í fyrri úrskurðum úrskurðarnefndarinnar nr. 579/2015 og 586/2015. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir rétt kæranda til aðgangs að gögnunum, lið fyrir lið, og taldi skylt á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga að veita fyrirtækinu aðgang að hluta umbeðinna gagna. Um önnur gögn ýmist staðfesti nefndin ákvörðun Isavia, vísaði kæru frá eða lagði fyrir Isavia að taka beiðnina til nýrrar meðferðar.
Kærð var ákvörðun Háskóla Íslands um synjun beiðni um aðgang að eldri prófum í námskeiði við skólann. Úrskurðarnefndin taldi ekki fært að fallast á með skólanum að prófið teldist fyrirhugað í skilningi 5. tl. 10. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Því var kærandi talinn eiga rétt á aðgangi samkvæmt meginreglu 1. mgr. 5. gr. laganna.

Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að öllum gögnum er tengdust ákvörðun sveitarfélags um framkvæmdaleyfi vegna lagningar Kröflulínu 4. Leyst var úr rétti kæranda til aðgangs að gögnunum á
grundvelli meginreglu 5. gr. laga 23/2006 um upplýsingarétt almennings um
umhverfismál. Ekki var fallist á að gögnin væru vinnugögn enda höfðu þau borist á milli utanaðkomandi sérfræðings og sveitarfélagsins. Þá var ekki fallist á að minnisblað lögmanns félli undir undanþáguákvæði 3. tl. 6. gr. upplýsingalaga. Þar sem engar undanþágur laga frá upplýsingarétti almennings þóttu eiga við um þau gögn, sem synjað var um aðgang að, var kveðið á um skyldu sveitarfélagsins til að afhenda kæranda gögnin.

Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að þremur lögregluskýrslum um föður kæranda á grundvelli laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda ekki hafa einstaka hagsmuni umfram aðra að fá aðgang að skýrslunum. Var því fallist á það með Þjóðskjalasafni Íslands að rétt hafi verið að leysa úr beiðni kæranda á grundvelli V. kafla laga nr. 77/2014 um upplýsingarétt almennings. Þá var talið að Þjóðskjalasafni Íslands hafi verið rétt að synja kæranda um aðgang að skýrslunum með vísan til 1. mgr. 26. gr. laganna þar sem þær hefðu að geyma einkahagsmuni einstaklinga sem eðlilegt væri og sanngjarnt að færu leynt.

Deilt var um aðgang að umsóknargögnum umsækjanda um uppreist æru. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að umsókn viðkomandi umsækjanda félli í heild sinni undir undanþáguákvæði 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Yrði því að taka afstöðu til þess hvort einstök gögn málsins kynnu að geyma upplýsingar um einkahagi sem óheimilt væri að afhenda samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga. Var það mat nefndarinnar að upplýsingar um símanúmer og netföng umsækjanda og votta auk heilsufarsupplýsinga sem fram kæmu í vottorðum, væru upplýsingar sem sanngjarnt væri og eðlilegt að leynt færu á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Að öðru leyti var fallist á rétt kæranda til aðgangs að þeim upplýsingum er fram komu í gögnunum. 

Deilt var um aðgang kæranda að upplýsingum sem afmáðar höfðu verið úr sálfræðilegri greinargerð sem embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu lét útbúa í tilefni af kvörtun kæranda um meint einelti í sinn garð. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi, með vísan til 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga, að réttur kæranda til aðgangs að framburði meintra gerenda og vitna um atvik sem snertu framgöngu hennar á vinnustað og meint einelti í garð kæranda vægi þyngra en hagsmunir sömu aðila af því leynd ríkti um framburð þeirra um atvik málsins. Úrskurðarnefndin taldi þó ekki að aðgangur kæranda samkvæmt 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga tæki til upplýsinga um rannsókn sakamáls, sbr. 1. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, og upplýsinga sem umræddir starfsmenn tjáðu sálfræðingi um persónuleg einkamálefni sín og annarra en kæranda og lytu ekki að henni sjálfri eða framgöngu á vinnustað. Var því embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu gert skylt að afmá slíkar upplýsingar áður en kæranda yrði veittur aðgangur að gögnunum.
Staðfest var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að skýrsludrögum vegna úttektar Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með ráðuneytinu að líta mætti á skýrsludrögin sem „samskipti við fjölþjóðastofnun“ í skilningi 2. tl. 10. gr. upplýsingalaga. Vísað var til þess að nefndin hafi litið svo á að til að tryggja góð samskipti og gagnkvæmt traust í alþjóðasamstarfi væri rétt að undanþiggja samskipti sem færu fram á þeim vettvangi frá aðgangi almennings á meðan samskiptin stæðu yfir. Var því fallist á með ráðuneytinu að því hafi verið heimilt að synja um aðgang að skýrsludrögunum þegar ákvörðun um það var tekin en í málinu lá fyrir að lokaútgáfa skýrslunnar var birt almenningi eftir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók málið til meðferðar.
Synjun úrskurðarnefndar lögmanna á beiðni kæranda um aðgang að gögnum í máli tiltekins lögmanns var felld úr gildi og málinu vísað til úrskurðarnefndarinnar til nýrrar meðferðar. Synjun úrskurðarnefndar lögmanna var byggð á því að nefndinni væri óheimilt á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga að upplýsa hvort fyrirliggjandi væru gögn er heyrðu undir beiðni kæranda.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að úrskurðarnefnd lögmanna væri almennt óheimilt að staðfesta hvort mál hafi komið til kasta hennar heldur þyrfti að taka afstöðu til þess hverju sinni hvort 9. gr. upplýsingalaga komi í veg fyrir aðgang að gögnum mála.

Deilt var um afgreiðslu Þingeyjarsveitar á beiðni um afrit af öllum gögnum í tengslum við samning sveitarfélagsins við Landsnet hf. frá 26. september 2014 um fébætur vegna lagningar háspennulínu um jörðina Þeistareyki. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þær staðhæfingar sveitarfélagsins að öll gögn hefðu verið afhent kæranda. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Kærð var afgreiðsla Ríkisútvarpsins ohf. á beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem tengjast honum og notuð voru til umfjöllunar í Kastljóssþætti sem sýndur var í sjónvarpinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að rengja þá fullyrðingu RÚV að gögnin væru ekki í vörslum félagsins heldur hafi félagið fengið aðgang að gögnum hjá þriðja aðila við vinnslu fréttarinnar. Var því kærunni vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.

Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að skýrslu Náttúrufræðistofnunar Íslands um rannsókn á myglusveppum í tveimur sýnum úr gólfefnum í skólastjórabústað við Húnavallaskóla en skýrslan var í vörslum Fasteigna Húnavatnshrepps. Kærandi hafði haft búsetu í húsnæðinu sem skýrslan fjallaði um og fór því um rétt hans til aðgangs eftir 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi engin rök hafa verið færð fram fyrir því að synja bæri kæranda um aðgang að skýrslunni. Var því synjunin felld úr gildi.

Kærð var afgreiðsla Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á beiðni kæranda um aðgang að upplýsingum og gögnum um stöðumælasektir í Reykjavíkurborg. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leit svo á að beiðni kæranda lyti ekki að því að fá í hendur öll gögn um stöðumælasektir í vörslum Bílastæðasjóðs, heldur að upplýsingar yrðu teknar saman. Þar sem umbeðið gagn var ekki talið fyrirliggjandi var kæru kæranda vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Kærð var synjun Þingvallaþjóðgarðs og umhverfis- og auðlindaráðuneytisins á beiðni kæranda um afhendingu gagna er varða kaup ríkisins á sumarhúsi á Valhallarstíg nyrðri 13 og niðurrif á því. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að hvorki Þingvallaþjóðgarður, Þingvallanefnd né íslenska ríkið geti talist eiga mikilvægra fjárhags- eða viðskiptahagsmuna að gæta af því að upplýsingar um kaup hins opinbera á fasteign fari leynt í skilningi 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Almenningur hafi hins vegar ríka hagsmuni af því að geta kynnt sér gögn um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Var því lagt fyrir Þingvallaþjóðgarð að veita kæranda aðgang að umbeðnum gögnum. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók fram að gagnabeiðni kæranda hafi meðal annars tekið til afrits af tilboði í niðurrif hússins og upplýsinga um hvernig stæði til að ganga frá lóðinni og nýta hana. Úrskurðarnefndin taldi ekki að öllu leyti ljóst hvort Þingvallanefnd hefði undir höndum gögn sem gætu veitt kæranda upplýsingar um þessi atriði. Var því lagt fyrir Þingvallanefnd að afgreiða beiðni kæranda að þessu leyti að nýju.
Kærð var synjun velferðarráðuneytisins á synjun beiðni um aðgang að öllum gögnum í vörslum ráðuneytisins sem varði þjónustu kæranda og bárust ráðuneytinu á tilteknu tímabili. Ráðuneytið afhenti kæranda umbeðin gögn en synjaði um aðgang tilteknum bréfaskiptum með vísan til 3. tl. 6. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi hluta gagnanna heyra undir undanþáguákvæðið og staðfesti synjun ráðuneytisins á beiðni um aðgang að þeim. Úrskurðarnefndin féllst hins vegar ekki á að fylgiskjöl með bréfum féllu undir undanþáguákvæðið og taldi kæranda eiga rétt til aðgangs að þeim á grundvelli 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga.

Deilt var um aðgang að tilboðum fyrirtækis í gerð vefsíðna fyrir Reykjanesbæ sem synjaði um afhendingu gagnanna með vísan til 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki að í gögnunum fælust upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni tilboðsgjafa að undanskildum upplýsingum um viðskiptamenn fyrirtækisins. Var því aðgangur veittur að hluta. Beiðni kæranda um tilboðsbeiðni sveitarfélagsins var vísað til nýrrar meðferðar þar sem ekki hafði verið tekin afstaða til aðgangs að því gagni.

Kærð var synjun embættis landlæknis á beiðni um aðgang að samstarfssamningi embættisins, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og TM Software um þróun á hugbúnaði. Synjun embættisins var byggð á því að í samningnum kæmu fram upplýsingar um mikilvæga fjárhags- og viðskiptahagsmuni TM Software sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ekki hafa verið sýnt fram á að í samningnum kæmu fram upplýsingar sem væru til þess fallnar að valda fyrirtækinu tjóni yrði aðgangur veittur. Þá var litið til þess að upplýsingarnar lytu með beinum hætti að ráðstöfun opinberra fjárhagslegra hagsmuna. Nefndin taldi að þegar vegnir væru saman hagsmunir fyrirtæksins af því að efni samningsins færi leynt og þeir mikilvægu almannahagsmunir sem felast í aðgangi almennings að upplýsingum um ráðstöfun opinberra hagsmuna, stæðu lagarök ekki til þess að heimilt væri að synja um aðgang að samningnum grundvelli 9. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að samningnum í heild sinni.

Kærð var synjun Akureyrarbæjar á aðgangi að launamiðum tiltekinna verktaka fyrir tiltekin ár en synjun sveitarfélagsins var reist á 9. gr. upplýsingalaga. Í málinu lá fyrir að sveitarfélagið hafði að eigin frumkvæði útbúið skjal með umbeðnum upplýsingum og sent þær með tölvupósti. Með hliðsjón af atvikum máls taldi úrskurðarnefnd um upplýsingamál tækt að fjalla um hvort kærandi ætti rétt til aðgangs að tölvupóstinum. Nefndin benti á að tölvupósturinn innibæri upplýsingar um ráðstöfun opinberra hagsmuna. Var það niðurstaða nefndarinnar að ekkert í gagninu væri þess eðlis að heimilt væri að takmarka aðgang kæranda að þeim vegna hagsmuna þriðja aðila, sbr. 9. gr. upplýsingalaga. Var því fallist á rétt kæranda til aðgangs að tölvupóstinum.  

Kærð var synjun Matvælastofnunar á beiðni blaðamanns um aðgang að gögnum um aðbúnað dýra á tilteknu lögbýli. Synjun stofnunarinnar var byggð á á 9. gr. upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi ljóst að þær upplýsingar sem fram kæmu í gögnunum varði einkamálefni einstaklinga í skilningi 9. gr. upplýsingalaga. Þegar vegnir væru saman hagsmunir aðila málsins af því að upplýsingar um viðkvæm persónuleg málefni þeirra fari leynt á móti þeim almennu hagsmunum sem felast í því að fjölmiðlar fái aðgang að gögnum um aðbúnað dýra, þótti nefndinni hinir fyrrgreindu vega þyngra. Var því ákvörðun Matvælastofnunar um synjun beiðni kæranda staðfest.

Kæru vegna synjunar á aðgangi að gögnum í vörslum Langanesbyggðar var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem sveitarfélagið afhenti kæranda gögnin eftir að kæra barst.